6630. Stormur EA 48 ex Þorleifur SH 120. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2015. Stormur EA 48 er hér að færa sig til í Dalvíkurhöfn að lokinni löndun í júlímánuði árið 2015. Stormur, sem heitir Raftur ÁR 13 í dag og er í eigu samnefnds fyrirtæki, var smíðaður árið 1979 og hét upphaflega Sigmar RE 162. Hann … Halda áfram að lesa Stormur EA 48
Month: október 2020
Einn rauður og þrír bláir
1979. Haförn ÞH 26 ex Þorsteinn BA 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Í dag komu til löndunar á Húsavík fjórir dragnótabátar sem voru að veiðum á Skjálfanda og þar af var einn rauður að lit. Heimabáturinn Haförn ÞH 26. Hinir þrír eru bláir að lit en enginn þó alveg í sama lit. Þetta voru Bárður … Halda áfram að lesa Einn rauður og þrír bláir
Bárður SH 81
2965. Bárður SH 81. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Bárður SH 81 frá Ólafsvík kom til löndunar á Húsavík um miðjan daginn en báturinn var að dragnótaveiðum á Skjálfandaflóa. Bárður SH 81 var smíðaður fyrir Bárð SH 81 ehf. en að því fyrirtæki stendur Pétur Pétursson skipstjóri og útgerðarmaður á Arnarstapa á Snæfellsnesi. Smíði bátsins fór … Halda áfram að lesa Bárður SH 81
Það rigndi hressilega þegar Bárður kom
2965. Bárður SH 81. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Það var farið að skyggja og rigndi hressilega þegar dragnótabáturinn Bárður SH 81 frá Ólafsvík kom að landi á Húsavík í dag. Bárður SH 81 hefur verið við dragnótaveiðar á Eyjafirði að undanförnu en færði sig yfir í Skjálfandaflóa í dag. 2965. Bárður SH 81. Ljósmyndir Hafþór … Halda áfram að lesa Það rigndi hressilega þegar Bárður kom
Landað úr Hafborginni
2940. Hafborg EA 152. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Hafborg EA 152 kom til löndunar á Húsavík síðdegis í dag eftir að hafa verið að dragnótaveiðum á Skjálfanda. Hafborg EA 152 er 284 brúttótonn að stærð, lengd hennar er 26 metrar og hún er átta metra breið. Hafborg er gerð út af samnefndu fyrirtæki og heimahöfnin … Halda áfram að lesa Landað úr Hafborginni
Geir ÞH 150 frá Þórshöfn
2408. Geir ÞH 150. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Geir ÞH 150 var smíðaður fyrir Geir ehf. á Þórshöfn í Ósey í Hafnarfirði árið 2000 og kom fyrsta skipti til heimahafnar í septembermánuði þar ár. Í Morgunblaðinu þann 21. september árið 2000 mátti lesa eftirfarandi frétt frá fréttaritara blaðsins á Þórshöfn: Nýr bátur bættist í flotann … Halda áfram að lesa Geir ÞH 150 frá Þórshöfn
Sandafell HF 82
1812. Sandafell HF 82. Ljósmynd Hörður Harðarson. Sandafell HF 82 var smíðað í Póllandi fyrir Hvamsfell hf. í Hafnarfirði og kom til landsins sumarið 1988. Svo segir frá í 9. tbl. Ægis það ár: 20. júlí sl. kom nýtt stálfiskiskip til Hafnarfjarðar, m/s Sandafell HF 82. Skip þetta er smíðað hjá skipa smíðastöðinni Stocznia Wisla … Halda áfram að lesa Sandafell HF 82
Hafursey VE 122
1416. Hafursey VE 122 ex Steinunn SF 107. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Hafursey VE 122 hét upphaflega Skarðsvík SH 205 og var í eigu samnefnds fyrirtækis á Hellisandi. Hér má lesa sögu skipsins en það var árið 2009 sem Kópavík ehf. í Vestmannaeyjum keypti það frá Hornafirði og nefndi Hafursey VE 122. Árið 2011 keypti Vísir … Halda áfram að lesa Hafursey VE 122
Oddur BA 71
6609. Oddur BA 71 ex Oddur KÓ 7. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Oddur BA 71 var smíðaður í Trefjum í Hafnarfirði árið 1985 og hét upphaflega Malli SK 100 frá Sauðárkróki. Árið 1991 fékk hann nafnið Oddur SK 100 en þá einkennisstafi bar hann til ársins 2018 er hann fékk KÓ 7. KÓ 7 fékk … Halda áfram að lesa Oddur BA 71
Aðalbjörg II RE 236
1269. Aðalbjörg II RE 236 ex Gulltoppur ÁR 321. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Útgerðarfélagið Aðalbjörg s/f í Reykjavík keypti Gulltopp ÁR 321 í sumarbyrjun 1987 og nefndi Aðalbjörgu II RE 236. Báturinn hét upphaflega Borgþór GK 100 eins og áður hefur komið fram á síðunni og var smíðaður í Bátalóni árið 1972. Meðan báturinn var í eigu Aðalbjargar … Halda áfram að lesa Aðalbjörg II RE 236









