
Bárður SH 81 frá Ólafsvík kom til löndunar á Húsavík um miðjan daginn en báturinn var að dragnótaveiðum á Skjálfandaflóa.
Bárður SH 81 var smíðaður fyrir Bárð SH 81 ehf. en að því fyrirtæki stendur Pétur Pétursson skipstjóri og útgerðarmaður á Arnarstapa á Snæfellsnesi.
Smíði bátsins fór fram í Bredgaard bátasmiðjunni í Rødby í Danmörku og er smíðanúmer 135 hjá stöðinni.
Bárður SH 81 er 26,90 metra langur og 7 metra breiður og mælist 153 brúttótonn að stærð. Hann er stærsti trefjaplastbátur sem smíðaður hefur verið fyrir íslenska útgerð.
Hann kom í fyrsta skipti til heimahafnar í Ólafsvík 23. desember 2019 en hafði þá verið í Hafnarfirði frá 30.nóvember þar sem m.a var sett í hann netaspil og krapakerfi.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution