Guðrún Þorkelsdóttir SU 211

2944. Guðrún Þorkelsdóttir SU 211 ex Qavak GR 2 1. Ljósmynd Þór Jónsson 2020. Þór Jónsson á Djúpavogi, skipverji á Ljósafelli SU 70, tók þessa mynd af Guðrúnu Þorkelsdóttur SU 211 á miðunum seint í ágústmánuði. Eskja hf. keypti skipið haustið 2017 en það hét áður Qavak GR 2 1 og var í eigu dótturfélags … Halda áfram að lesa Guðrún Þorkelsdóttir SU 211

Bervík SH 343

936. Bervík SH 343 ex Friðrik Bergmann SH 240. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Bervík SH 343, sem sést hér á mynd Tryggva Sigurðssonar, hét upphaflega Æskan SI 140 og var smíðuð 1963 hjá Raun Bybergs Skibsbyggeri as. í Odense í Danmörku fyrir Æskuna hf. á Siglufirði. Hún mældist í upphafi 82 brl. að stærð en var síðan … Halda áfram að lesa Bervík SH 343

Tveir nýir Cleopatra 31 til Noregs

Ea N-10-SO. Ljósmynd Trefjar 2020. Nú nýverið afgreiddi bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði tvo nýja Cleopatra báta til Nordlandsfylkis í Norður Noregi. Bátarnir, sem komnir eru til Noregs og heita Emmy og Ea, eru báðir af gerðinnni Cleopatra 31 en þeir eru 9.6 metrar að lengd og mælast 9 brúttótonn að stærð. Útgerðarmennirnir eru Trygve  Magnus … Halda áfram að lesa Tveir nýir Cleopatra 31 til Noregs

Haförn kemur að landi eftir dragnótaróður

1979. Haförn ÞH 26 ex Þorsteinn BA 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Haförn ÞH 26 kom að landi á Húsavík síðdegis í dag en báturinn er gerður út af Ugga fiskverkun ehf. til dragnótaveiða Uggi fiskverkun ehf. keypti bátinn til Húsavíkur haustið 2010 en hann hét áður Þorsteinn BA 1 frá Patreksfirði. Haförn ÞH 26 hét upphaflega … Halda áfram að lesa Haförn kemur að landi eftir dragnótaróður

Sigurður Ólafsson við bryggju á Höfn

173. Sigurður Ólafsson SF 44 ex Sigurður Sveinsson SH 36. Ljósmynd Sverrir Aðalsteinsson. Hann ber aldurinn vel hann Sigurður Ólafsson SF 44 sem hér liggur í blankalogni við bryggju á Höfn. Báturinn var smíðaður í Risör í Noregi árið 1960 fyrir Guðmund Runólfsson Grafarnesi, Guðmund Kristjánsson og Jón Kristjánsson í Eyrarsveit Snæfellssýslu og hét Runólfur SH 135. … Halda áfram að lesa Sigurður Ólafsson við bryggju á Höfn

Bárður SH 81 kom til Dalvíkur

2965. Bárður SH 81. Ljósmynd Haukur Sigtryggur 2020. Bárður SH 81 kom til Dalvíkur nú í kvöld og tók Haukur Sigtryggur þessar myndir við það tækifæri. Bárður er á dragnót en eins og menn muna þá er hann stærsti trefjaplastbátur sem smíðaður hefur verið fyrir íslenska útgerð. Bárður SH 81 er 26,93 metra langur, breidd … Halda áfram að lesa Bárður SH 81 kom til Dalvíkur