7433. Kolbeinn Hugi ÞH 376 ex Bergur Pálsson ÞH 376. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Kolbeinn Hugi ÞH 376 sést hér á mynd koma til hafnar á Dalvík í marsmánuði árið 2006. Báturinn hét upphaflega Bergur Pálsson ÞH 376 frá Raufarhöfn og var smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 1995. Báturinn, sem er af gerðinni Skel … Halda áfram að lesa Kolbeinn Hugi ÞH 376
Month: maí 2020
Safnskipið Óðinn sigldi á ný
159. Óðinn. Ljósmynd Magnús Jónsson 2020. Safnskipið Óðinn sigldi út á ytri höfn Reykjavíkur í gær og aðalvélar skipsins voru ræstar í fyrsta sinn í 14 ár. Á vef Landhelgisgæslunnar segir í gær: Skipið gegndi hlutverki varðskips í um árabil en hefur undanfarin ár verið hluti af Sjóminjasafni Reykjavíkur. Það er óhætt að segja að … Halda áfram að lesa Safnskipið Óðinn sigldi á ný
Lokadagur vetrarvertíðar 11. maí
Vertíðarbátar við bryggju í Ólafsvík fyrir margt löngu. Ljósmynd Þorgeir Baldursson. Þann 11. maí er lokadagur vetrarvertíðar samkvæmt gömlu tímatali og af því tilefni birtist hér mynd af vertíðarbátum við bryggju í Ólafsvík. Myndina tók Þorgeir Baldursson en bátarnir eru fv. Lómur SH 177, Tindfell SH 21, Halldór Jónsson SH 217, Sveinbjörn Jakobsson SH 10 og Matthildur … Halda áfram að lesa Lokadagur vetrarvertíðar 11. maí
Bergur Vigfús á skaki
2746. Bergur Vigfús GK 53 ex Geirfugl GK 66. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2020. Bergur Vigfús GK 53 stundar handfæraveiðar um þessar mundir og tók Jón Steinar þessar myndir af bátnum í gær. Báturinn var þá á skaki rétt suður af Hópsnesi við Grindavík og veðurblíða á miðunum eins og sjá má. Bergur Vigfús GK … Halda áfram að lesa Bergur Vigfús á skaki
Þinganes SF 25
2970. Þinganes SF 25. Ljósmynd Óskar Franz 2020. Óskar Franz tók þessa mynd af Þinganesinu frá Hornafirði í gær þegar það kom að landi í Þorlákshöfn með fullfermi. Þinganes SF 25 er í hópi sjö systurskipa sem norska skipasmíðastöðin VARD smíðaði fyrir íslenskar útgerðir. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana … Halda áfram að lesa Þinganes SF 25
Cleopatra 46B og 50 mætast
2961. Kristjan HF 100 - 2817. Fríða Dagmar ÍS 103. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2020. Cleopatrabátarnir frá Trefjum í Hafnarfirði eru af ýmsum gerðum og stærðum eins og m.a má sjá á þessari mynd. Þarna mætast Kristján HF 100, sem er af gerðinni Cleopatra 46B, og Fríða Dagmar ÍS 103, sem er Cleopatra 50. Fríða … Halda áfram að lesa Cleopatra 46B og 50 mætast
Siggi Bjarna GK 104
2106. Siggi Bjarna GK 104 ex Sæstjarnan ÍS 188. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Siggi Bjarna GK 104 hét upphaflega Sæstjarnan SH 35 og var smíðaður árið 1990 hjá Fossplasti h/f. Smíðastaður Hveragerði. Sæstjarnan SH 35 varð ÍS 188 á árunum 1994-1997 og gerð út frá Suðureyri við Súgandafjörð. Árið 1998 fékk báturinn nafnið Siggi Bjarna GK … Halda áfram að lesa Siggi Bjarna GK 104
Langanes á landleið
1202. Langanes GK 525 ex Grundfirðingur SH 12. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2020. Jón Steinar tók þessar myndir í Njarðvík á dögunum og sýna þær netabátinn Langanes GK 525 þar sem hann var á landleið eftir róður. Það er Grímsnes ehf. sem gerir bátinn út en fyrirtækið keypti hann frá Grundarfirði í fyrra. Báturinn hét upphaflega … Halda áfram að lesa Langanes á landleið
Lilja SH 16
2712. Lilja SH 16 ex Alda HU 312. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2020. Lilja SH 16, sem er hér að færa sig til eftir löndun í Grindavíkurhöfn, var smíðuð árið 2007 hjá Trefjum í Hafnarfirði. Báturinn var smíðaður fyrir Útgerðarfélagið Breiðuvík ehf. í Óafsvík sem nefndi bátinn Kristinn SH 712. Í frétt á heimasíðu Trefja … Halda áfram að lesa Lilja SH 16
Kristbjörg VE 70
136. Kristbjörg VE 70. Ljósmynd Hannes Baldvinsson. Kristbjörg VE 70 frá Vestmannaeyjum er hér drekkhlaðin af síld á mynd Hannesar Baldvinssonar á Siglufirði. Báturinn var smíðaður í Noregi árið 1960 fyrir Svein Hjörleifsson í Vestmannaeyjum. Í Morgunblaðinu 13. apríl 1960 sagði svo frá komu Kristbjargar til heimahafnar: Í gær kom hingað til Vestmannaeyja nýr bátur, sem … Halda áfram að lesa Kristbjörg VE 70









