
Jón Steinar sendi drónann til móts við Óla á Stað GK 99 þegar hann kom að landi í Grindavík í gær.
Aflinn var fjórtán tonn en það er Stakkavík ehf. sem gerir bátinn út til línuveiða.
Óli á Stað GK 99 var smíðaður á Akureyri, í Seiglu, og afhentur vorið 2017. Hann er 14,8 metra langur og mælist 29.95 BT að stærð.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution