
Hér er Súlan EA 300 á leið inn Skjálfandann um árið en hún lagði upp hjá Fiskiðjusamlagi Húsavíkur. Var að mig minnir á fiskitrolli en sennilega á rækju yfir sumarið.
Súlan var 354 brl. að stærð, smíðuð í Fredrikstad í Noregi 1967 fyrir Leó Sigurðsson á Akureyri. Hún var lengd í Hollandi 1974 og mældist þá 393 brl. og yfirbyggt 1975 og mældist þá 391 brl. 1983 er skráður eigandi Súlur h/f á Akureyri.
Súlan átti eftir að fara í frekari breytingar sem sagt verður frá síðar hér á síðunni.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution