
Togararnir Robin M Lee og SIL sem legið hafa við bryggju í Vigó að undnaförnu létu úr höfn í gær.
Samkvæmt AIS var áfangastaður Robin M Lee Stanley á Falklandseyjum sem er heimahöfn togarans. Hann er skráður undir fána Falklandseya.
Robin M Lee var smíðaður árið 1989 og er 2,036 GT að stærð. Hann hét áður Saint Denis.
SIL, sem er 2,156 GT að stærð, siglir í þessum skrifuðu orðum til Las Palmas á Kanaríeyjum en báðir þessir togarar stunda veiðar í Suðurhöfum.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution