Kaldbakur á siglingu

2891. Kaldabakur EA 1. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Kaldbakur EA 1 er hér á siglingu á veiðislóð við Hvalbakshallið fyrir nokkrum dögum. 2891. Kaldabakur EA 1. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Hvalbakshallið er gjöful fiskimið út af suðaustanverðu landinu. 2891. Kaldabakur EA 1. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær … Halda áfram að lesa Kaldbakur á siglingu

Helga við Bökugarðinn

Helga við Bökugarðinn. Ljósmynd Gaukur Hjartarson 2019. Flutningaskipið Helga hefur legið við Bökugarðinn á Húsavík undanfarna daga þar sem kvarstfarmi fyrir PCC á Bakka hefur verið skipað upp. Skipið var smíðað í Kína árið 2009, nánaf tiltekið Damen Shipyards í borginni Yichang. Það er 143 metrar að lengd, 19 metra breitt og mælist 8.999 GT … Halda áfram að lesa Helga við Bökugarðinn

Gústi Guðna heitir nú Matti Viktors

7768. Gústi Guðna SI 150. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2015. Hér gefur að líta handfærabátinn Gústa Guðna SI 150 koma að landi á Siglufirði í júlímánuði árið 2015. Gústi Guðna SI 150 var í eigu F-610 ehf. á Siglufirði frá árinu 2014 og þar til fyrir skömmu að Bubba Gump ehf. á Þingeyri við Dýraafjörð keypti … Halda áfram að lesa Gústi Guðna heitir nú Matti Viktors

Mark ROS 777 í Hafnarfirði

Mark ROS 777. Ljósmynd Magnús Jónsson 2019. Þýski frystitogarinn Mark ROS 777 er í Hafnarfjarðarhöfn og tók Maggi Jóns þessar myndir af honum. Skipið var smíðað í Tersan skipasmíðastöðinni í Tyrklandi og afhent eigandanum, Parlevliet & Van der Plas group í júní 2015. Heimahöfn þess er í Rostock. Mark ROS 777. Ljósmynd Magnús Jónsson 2019. … Halda áfram að lesa Mark ROS 777 í Hafnarfirði

Björg SU 3 frá Breiðdalsvík

1935. Björg SU 3 ex Björg VE 5. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Björg SU 3 frá Breiðdalsvík var einn þeirra úthafsrækjubáta sem komu oft til hafnar á Húsavík til að landa eða sækja sér þjónustu netagerðarinna ofl. aðila. Báturinn er 123 brl./197 brútt­ót­onn að stærð, smíðaður í Svíþjóð 1988 fyr­ir Gísla V. Ein­ars­son út­gerðarmann í … Halda áfram að lesa Björg SU 3 frá Breiðdalsvík

Sveinn Rafn SU 50

2204. Sveinn Rafn SU 50 ex Hrannar HF 346. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Rækjutogarinn Sveinn Rafn SU 50 kemur hér að landi á Húsavík á fögru ágústkveldi árið 2003. Togarinn var keyptur frá Grænlandi síðla árs 1993 af Kögurfelli ehf. á Ísafirði og fékk nafnið Hafrafell ÍS 222. Hafrafell ÍS 222 kom til heimahafnar á … Halda áfram að lesa Sveinn Rafn SU 50

Beta GK 36 kom til Grindavíkur í dag

2764. Beta GK 36 ex Beta VE 36. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Beta GK 36 kom til hafnar í Grindavík síðdegis í dag úr línuróðri og var aflinn um 8, 5 tonn samkvæmt upplýsingum ljósmyndarans. Beta GK 36 er af gerðinni Cleopatra 38 og var smíðuð fyrir Útgerðarfélagið Má ehf. í Vestmannaeyjum árið 2008 og … Halda áfram að lesa Beta GK 36 kom til Grindavíkur í dag

Erla Kristín EA 155

2587. Erla Kristín EA 155 ex Ásdís ÞH 136. Ljósmynd Haukur Sigtrygur 2019. Erla Kristín EA 155 úr Hrísey lenti fyrir linsunni hjá Hauki Sigtryggi í dag en báturinn er af gerðinni Sómi 795. Báturinn, sem er Sómi 795, var smíðaður í Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 2003 og hefur borið eftirfarandi nöfn: Aðalbjörg Þ. … Halda áfram að lesa Erla Kristín EA 155