
Vélbáturinn Helgi SF 50 var smíðaður fyrir Hornfirðinga í Danmörku 1956 og var 56 brl. að stærð.
Á þessari mynd Hannesar Baldvinssonar er hann að koma með síld til löndunar á Siglufirði.
15. september 1961 fórst Helgi SF 50 á Færeyjabanka og fórust þar sjö menn, en tveir komust af eftir að hafa hrakist um í björgunarbáti í 22 klukkustundir.
Helgi SF 50 var á heimleið úr sölutúr til Englands þegar slysið varð.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution
Þetta er nú að verða soldið rosalegt þarna í merardalnum hjá ‘Isólfi bónda. kv .að sunnan . AE.
Líkar viðLíkar við
Þetta er klúður hjá mér, engin athugasemd við góða mynd af Helga SF50 á Siglufirði . kv.AE.
Líkar viðLíkar við