Sveinn Benediktsson SU 77

2329. Sveinn Benediktsson SU 77 ex Talbor. Ljósmynd Pétur Helgi Pétirsson. Sveinn Benediktsson SU 77 hét áður Talbor og var keyptur til landsins af SR Mjöl hf. árið 1999. Skipið var smíðað í Noregi árið 1990 og er 56 metra langt og 11 metra breitt, alls 1.230 brúttólestir. Hét upphaflega Torson. Hét síðan Guðmundur Ólafur … Halda áfram að lesa Sveinn Benediktsson SU 77

Gadus Njord N-125-VV

Gadus Njord N-125-VV. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2017. Hér koma tvær myndir af norska skuttogaranum Gadus Njord sem Eiríkur Sigurðsson skipstjóri á Reval Viking tók. Það er útgerðin Havfisk í Noregi sem á Gadus Njord en á árunum 2013 og 2014 fékk fyrirtækið afhenta þrjá nýja togara eftir sömu teikningu, Gadus Poseidon, Gadus Njord og Gadus Neptun. … Halda áfram að lesa Gadus Njord N-125-VV

Héðinn Magnússon ÞH 17

1354. Héðinn Magnússon ÞH 17 ex Viðar ÞH 17. Ljósmynd Alfons Finnsson. Héðinn Magnússon ÞH 17 hét upphaflega Múli ÓF 5 og var smíðaður hjá Bátaverkstæði Gunnlaugs og Trausta á Akureyri og afhentur 1974. Múli átti síðan eftir að bera nöfnin Fiskanes NS, Faxavík GK, Harpa II GK, Skálavík SH, Guðbjörg Ósk VE, Guðbjörg Ósk … Halda áfram að lesa Héðinn Magnússon ÞH 17

Aron ÞH 105

2333. Aron ÞH 105. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1999. Aron ÞH á siglingu til 105 hafnar á Húsavík. Smíðaður í Strandby í Danmörku árið 1990. Knarraeyri ehf. á Húsavík keypti bátinn frá Fotø í Svíþjóð síðla árs 1998. Aron var skutlengdur ári síðar í Póllandi en útgerðarsaga hans á Íslandi varð ekki löng. Þann 30. september 2002 … Halda áfram að lesa Aron ÞH 105

Víkingur AK 100

Víkingur Ak 100. Ljósmynd Hilmar Örn Kárason 2016. Hér skemmtileg drónamynd af Víkingi AK 100 koma inn Vopnafjörðinn til löndunar Myndina tók Hilmar Örn Kárason skipverji á systurskipinu Venusi NS 150. Víkingur AK 100,sem er 81,19 metra langur og 17 metrar á breidd, var smíðaður í skipasmíðastöðinni Celiktrans Deniz Insaat Ltd í Tyrklandi og kom … Halda áfram að lesa Víkingur AK 100