
Sveinn Benediktsson SU 77 hét áður Talbor og var keyptur til landsins af SR Mjöl hf. árið 1999.
Skipið var smíðað í Noregi árið 1990 og er 56 metra langt og 11 metra breitt, alls 1.230 brúttólestir. Hét upphaflega Torson.
Hét síðan Guðmundur Ólafur ÓF 91 og Birtingur NK 119 áður en hann var seldur aftur til Noregs árið 2009. Þar fékk hann nafnið Magnarson en síðar um árið seldur til Færeyja þar sem hann fékk nafnið Atlantsfarid VG 218.
Árið 2016 fékk það nafnið Norðhavið en ber í dag nafnið Cap Blanc CUR-135. Er í eigu Færeyinga en leigður hollensku fyrirtæki. Skráð í Willemstad á Curacao sem heyrir undir Holland.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.