Falksea. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Norska flutningaskipið Falksea kom til Húsavíkur í morgun með saltfarm. Um leið og hafnarstarfsmenn höfðu bundið Önnu (Sem segir frá í næstu færslu á undan) við bryggju voru landfestar Falksea leystar og lét skipið úr höfn og sigldi áleiðis til Dalvíkur. Falksea er 90 metra langt og 14 metra breytt. … Halda áfram að lesa Falksea kom með salt
Month: janúar 2019
Anna á Skjálfanda
Anna. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Flutningaskipið Anna kom til Húsavíkiur um kaffileytið í dag og voru þessar myndir teknar þá. Hún lagðist að Bökugarðinum þar sem skipað verður upp hráefnisfarmi fyrir PCC á Bakka. Anna er 126 metrar að lengd og 14,4 metrar á breidd. Mælist 5,044 GT að stærð. Smíðuð árið 2011. Anna siglir … Halda áfram að lesa Anna á Skjálfanda
Víkingur AK 100
220. Víkingur AK 100. Ljósmynd Kristján Friðrik Sigurðsson. Víkingur AK 100 er hér á loðnumiðunum , sennilega sumarið 2004. Myndina tók Kristján Friðrik Sigurðsson sem var þá í afleysingartúr á Björgu Jónsdóttur ÞH 321. Um Víking AK 100 er það að segja að hann hét alla tíð Víkingur AK 100 og þjónaði eigendum sínum í … Halda áfram að lesa Víkingur AK 100
Júpíter ÞH 61
161. Jípíter ÞH 61 ex Júpíter RE 161. Ljósmynd Kristján Friðrik Sigurðsson. Á þessum myndum Kristjáns Fr. Sigurðssonar má sjá samvinnu sjómanna á miðunum við Ísland. Júpíter ÞH 61 er búinn að fylla sig af loðnu og Björg Jónsdóttir ÞH 321 kemur að honum til að fá það sem eftir er í nótinni. 161. Júpíter … Halda áfram að lesa Júpíter ÞH 61
Guðbjörg RE 21
1201.Guðbjörg RE 21. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1982. Guðbjörg RE 21 kemur hér að bryggju í Þorlákshöfn á vetravertíðinni 1982 og Njáll RE 275 hefur komið að landi áður. Guðbjörg RE 21 var sjósett þann 30. desember 1971 á Fáskrúðsfirði og 3. janúar 1972 skrifaði Albert Kemp fréttaritari Morgunblaðsins frétt þar sem m.a þetta kom fram: FIMMTUDAGINN 30. … Halda áfram að lesa Guðbjörg RE 21
Wilson Nantes á Húsavík
Wilson Nantes. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Wilson Nantes liggur nú við Bökugarðinn og losar hráefnisfarm til PCC á Bakka. Skipið var smíðað árið 2011 og siglir undir fána Möltu með heimahöfn í Walletta. Það er 123 metra langt og 17 metra breitt. Mælist 6,118 GT að stærð. Með því að smella á myndina er hægt … Halda áfram að lesa Wilson Nantes á Húsavík
Andvari ÞH 81
278. Andvari ÞH 81 ex TH 81. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Hagbarður ÞH 81 var smíðaður á Akureyri 1942 og hét upphaflega Baldvin Þorvaldsson EA 721 frá Dalvík. Hann var smíðaður í Skipasmíðastöð KEA fyrir Baldvin, Aðalstein og Guðjón Loftssyni á Dalvík. Upphaflega var 40 hestafla Skandia aðalvél í bátnum en 1955 var sett í hann … Halda áfram að lesa Andvari ÞH 81
Selfoss við Bökugarðinn
Selfoss ex Shopia. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Selfoss, skip Eimskipafélags Íslands hf., er á Húsavík í dag en það kemur hingað á tveggja vikna fresti. Selfoss er 700 gámaeininga skip, 130 metra langur, og siglir undir færeyskum fána. Eimskip keypti skipið, sem smíðað var 2008, árið 2017 en það hét áður Sophia. Með því að smella … Halda áfram að lesa Selfoss við Bökugarðinn
Bergey VE 544
2744. Bergey VE 544. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Bergey VE 544 kom inn til löndunar í Vestmannaeyjum í morgun og tók Hólmgeir Austfjörð þessa myndasyrpu sem nú birtist. 2744. Bergey VE 544. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Bergey VE 544 er annað tveggja systurskipa Bergs-Hugins ehf. í Vestmannaeyjum sem smíðuð voru í Póllandi árið 2007. Hitt … Halda áfram að lesa Bergey VE 544
Kristján HF 100
2961. Kristján HF 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Kristján HF 100 er yfirbyggður Cleopatra 46B beitningavélarbátur frá Trefjum sem Útgerðarfélagið Kambur ehf. fékk afhentan sl. sumar. 2961. Kristján HF 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Báturinn er 14 metrar á lengd og mælist 30 brúttótonn og leysir af hólmi eldri Cleopatra bát með sama nafni. Skipstjórar … Halda áfram að lesa Kristján HF 100









