
Rækjuskipið Klara Sveinsdóttir SU 50 frá Fáskrúðsfirði togar hér á rækjuslóðinni árið 1993. Giska á að þetta sé austan við land.
Akkur hf. á Fáskrúðsfirði gerði skipið út sem var 292 tonn að stærð. Smíðað í Noregi 1978 og keypt notuð til Patreksfjarðar árið 1982. Þar hét skipið Jón Þórðarson BA 80 og leysti af hólmi samnefndan tappatogara. Í Noregi bar skipið nafnið Stig Björnar.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.