2061. Sunna SI 67 ex Vaka SU 9. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson. Sunna SI 67 frá Siglufirði togar hér á rækjuslóðinni um árið og það áður en hún fékk bláa litinn. Sunna SI 67 hét upphaflega Vaka SU 9 og var í eigu Eskfirðings hf. á Eskifirði. Hún var smíðuð á Spáni og kom í fyrsta … Halda áfram að lesa Sunna SI 67
Month: júní 2022
Dagur SK 17
2906. Dagur SK 17 ex Mark Amay. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Rækjubáturinn Dagur SK 17 frá Sauðárkróki kom til Húsavíkur einn fagran júní morgun árið 2018. Dagur SK 17 var keyptur árið 2016 frá Írlandi en skipið var smíðað á Spáni árið 1997. Rækjuverksmiðjan Dögun á Sauðárkróki gerði bátinn út en hann var seldur til … Halda áfram að lesa Dagur SK 17
Guðbjörg GK 666
2468. Guðbjörg GK 666 Guðbjörg HF 212. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Línubáturinn Guðbjörg GK 666 kemur hér að landi á Siglufirði sumarið 2018 en hann var gerður út af Stakkavík ehf. í Grindavík. Upphaflega hét báturinn Ársæll Sigurðsson HF 80 og var smíðaður í Kína árið 2001. Um bátinn, sem lengdur var í Skipasmíðastöð Njarðvíkur … Halda áfram að lesa Guðbjörg GK 666
Hardhaus VL-9-AV
IMO 9857482. Hardhaus VL-9-Av. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2022. Hér gefur að líta norska uppsjávarveiðiskipið Hardhaus VL-9-AV við kolmunnaveiðar sunnan við Færeyja. Myndina tók Hólmgeir Austfjörð í vor. Hardhaus VL-9-Av er nýlegt og glæsilegt skip, afhent samnefndu fyrirtæki árið 2021 en það var smíðað í Tyrklandi. Skipið er 74,5 metrar að lengd og 16 metra breitt. … Halda áfram að lesa Hardhaus VL-9-AV
Óskar Halldórsson RE 157
962. Óskar Halldórsson RE 157. Ljósmynd Olgeir Sigurðson. Óskar Halldórsson RE 157 var smíðaður í Zandaam í Hollandi fyrir Ólaf Óskarsson útgerðarmann í Reykjavík sem nefndi hann eftir föður sínum Óskari Halldórssyni útgerðarmanni og síldarspekúlant. Báturinn hét lengst af Óskar Halldórsson RE 157 en síðar Gestur SU 160, Votaberg SU 10, Aldey ÞH 380, … Halda áfram að lesa Óskar Halldórsson RE 157
Óðinn í Grindavík
159. Óðinn. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2022. Fyrrum varðskipið Óðinn, sem nú hefur fengið haffærnisskírteini sem safnskip, sótti Grindavík heim um Sjómannadagshelgina. Páll Jónsson GK 7 og Sighvatur GK 57 buðu fólk í skemmtisiglingu og fóru þau til móts við Óðinn. Jón Steinar sendi drónann á loft og tók þessar myndir sem nú birtast. Ljósmyndir … Halda áfram að lesa Óðinn í Grindavík
Aðalsteinn og Hreinn heiðraðir á Húsavík
Fv. Hulda Sigríður Ingadóttir, Aðalsteinn Ólafsson, Hreinn Jónsson og Svanhildur Þorleifsdóttir. Ljósmynd Framsýn. Tveir húsvískir sjómenn voru heiðraðir í dag, Sjómannadaginn, við hátíðlega athöfn í Hlyn, húsnæði eldri borgara á Húsavík. Það eru þeir Aðalsteinn Ólafsson og Hreinn Jónsson sem að þessu sinni voru heiðraðir fyrir störf sín til sjós en þeir voru til fjölda … Halda áfram að lesa Aðalsteinn og Hreinn heiðraðir á Húsavík
Sjómannadagshelgin gengin í garð
2962. Vörður ÞH 44. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2022. Þá er Sjómanndagshelgin gengin í garð og hér birtast myndir af Verði ÞH 44 koma til hafnar fyrir helgi. Signalinn kominn upp og skipið þar með komið í hátíðarbúning. 2962. Vörður ÞH 44. Ljósmyndir Jón Steinar Sæmundsson 2022. Með því að smella á myndirnar er hægt … Halda áfram að lesa Sjómannadagshelgin gengin í garð
Arnþór á toginu
1030. Arnþór EA 16 ex Björg Jónsdóttir ÞH 321. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson. Arnþór EA 16 á toginu við rækjuveiðar en hann var gerður út frá Árskógssandi. G. Ben sf. keypti hann þangað árið 1996 og var hann seldur þaðan austur á Djúpavog árið 1999. Seljandi BGB-Snæfell hf. Upphaflega hét skipið Örfirisey RE 14 og smíðað … Halda áfram að lesa Arnþór á toginu
Jón Finnsson RE 506
1742. Jón Finnsson RE 506. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson. Jón Finnsson RE 506 var smíðaðaður í Shiprepair Yard Gryfia í Stettin í Póllandi árið 1987 fyrir Gísla Jóhannesson útgerðarmann. Kom hann í stað eldra skips sem selt var úr landi. Árið 1995 keypti Ljósavík hf. í Þorlákshöfn skipið sem fékk nafnið Hersir Ár 4. Vinnslustöðin hf. … Halda áfram að lesa Jón Finnsson RE 506









