
Jón Finnsson RE 506 var smíðaðaður í Shiprepair Yard Gryfia í Stettin í Póllandi árið 1987 fyrir Gísla Jóhannesson útgerðarmann.
Kom hann í stað eldra skips sem selt var úr landi.
Árið 1995 keypti Ljósavík hf. í Þorlákshöfn skipið sem fékk nafnið Hersir Ár 4.
Vinnslustöðin hf. keypti Hersir ÁR 4 vorið 1997 og fékk hann nafnið Kap VE 4. Árið 1998 var skipið selt Faxamjöli hf. og fékk það þá nafnið Faxi RE. Það var síðan skráð hjá HB Granda eftir að dótturfélagið Faxamjöl var sameinað móðurfélaginu.
Vinnslustöðin keypti síðan Faxa RE aftur til Vestmannaeyja síðla árs 2015 og fékk skipið afur nafnið Kap VE 4.
Skipið var lengt árið 2000 og mælist eftir það 893 brl./1411 BT að stærð. Lengd þess og breidd er 60×11 metrar.
Aðalvélin er af Warstilagerð, 5800 hestöfl, sett niður um leið og skipið var lengt árið 2000.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution