1608. Lómur HF 777 ex Lómur HF 177. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér heldur Lómur HF 777 til veiða frá Hafnarfirði og árið er 1997 en hann bar þessa skráningu um tíma á því ári. Eigandi Lómur hf. en fyrirtækið hafði fengi nýjan Lóm, frystitogara frá Grænlandi, fyrr á árinu. Lómur hét upphaflega Baldur EA 108 … Halda áfram að lesa Lómur HF 777
Month: desember 2020
Baffin Bay brann og sökk í Vigo
IMO 8822416. Baffin Bay M1033. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Eldur kom upp í skuttogaranum Baffin Bay í gær þar sem hann lá í höfn í Vigo á Spáni. Hér má lesa frétt um atburðinn en togarinn sökk að lokum í höfninni. Og hér er önnur frétt um þetta. Meðfylgjandi mynd tók ég í Chapela við … Halda áfram að lesa Baffin Bay brann og sökk í Vigo
Hörður Björnsson lét úr höfn í dag
264. Hörður Björnsson ÞH 260 ex Gullhólmi SH 201. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Línuskipið Hörður Björnsson ÞH 260 lét úr höfn á Húsavík í dag eftir að hafa landað og beðið af sér bræluna. Það er GPG Seafood ehf. sem gerir skipið út en það er með heimahöfn á Raufarhöfn. Upphaflega hét skipið Þórður Jónasson, … Halda áfram að lesa Hörður Björnsson lét úr höfn í dag
Víkurberg SK 72
1866. Víkurbeg SK 72. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Þarna má sjá kallana á Víkurbergi SK 72 draga netin en báturinn var í eigu Víkufisks með heimahöfn í Haganesvík í Fljótum. Í jólablaði Einherja, sem var blað Kjördæmissambands framsóknarmanna á Norðurlandi vestra, árið 1987 sagði svo frá: Nýlega bættist nýr bátur í flota Fljótamanna, Víkurberg SK-72. Skrokkur bátsins, … Halda áfram að lesa Víkurberg SK 72
Ísleifur IV ÁR 463
250. Ísleifur IV ÁR 463 ex Ísleifur IV ÁR 66. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Ísleifur IV ÁR 463 var upphaflega VE 463 og var smíðaður í Noregi árið 1964 fyrir Ársæl Sveinsson útgerðarmann í Vestmannaeyjum. Báturinn var 216 brl. að stærð, búinn 450 hestafla Stork diesel aðalvél. Sumarið 1975 voru skráðir eigendur Ársæll Ársællsson Selfossi og … Halda áfram að lesa Ísleifur IV ÁR 463
Sænes EA 75
797. Sænes EA 75 ex Rikhard SK 77. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1986. Netabáturinn Sænes EA 75 er hér á miðunum úti fyrir Norðurlandi á vetrarvertíð. Hann var gerður út frá Dalvík árin 1982-1987. Upphaflega hét báturinn Straumnes ÍS 240 og var smíðaður árið 1959 í A-Þýskalandi fyrir Kögur h/f á Ísafirði. Hann var 94 brl. … Halda áfram að lesa Sænes EA 75
Olga 1
7369089. Olga 1 ex Olga. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2011. Rússneski togarinn Olga 1 kom til Húsavíkur um árið en hverra erinda ég man ekki. Olga 1 hét upphaflega Nordkyntraal og var smíðuð í Harstad í Noregi árið 1974. Hún er 485 brúttótonn að stærð og var með heimahöfn í Murmansk. Togaranum hefur verið lagt sýnist … Halda áfram að lesa Olga 1






