7392. Dímon GK 38 ex Dímon KE 48. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2020. Handfærabáturinn Dímon GK 38 kom til hafnar í Sandgerði í gær og tók Jón Steinar þessa mynd af honum þá. Það er útgerðarfélagið Dímon ehf. sem gerir bátinn út en hann var smíðaður í Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 1997. Báturinn, sem … Halda áfram að lesa Dímon GK 38
Month: maí 2020
Búið að byggja yfir Sigga Bessa
2739. Siggi Bessa SF 97. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2020. Búið er að byggja yfir Sigga Bessa SF 97 frá Hornafirði og fór framkvæmdin fram í Bátasmiðjunni Sólplasti í Sandgerði. Siggi Bessa SF 97 er í eigu Erps ehf. á Hornafirði og hefur verið síðan árið 2008 en upphaflega hét hann Bangsi BA 337. Báturinn, … Halda áfram að lesa Búið að byggja yfir Sigga Bessa
Ólafur GK 33
434. Ólafur GK 33 ex Friðrik Sigurðsson ÁR 7. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ólafur GK 33, sem hér kemur til hafnar í Grindavík um árið, var smíðaður í Struer í Danmörku árið 1945. Hann var 36 brl. að stærð, búinn 150 hestafla Volund dieselvél. Báturinn var keyptur til landsins árið 1955 af Hafnarnesi h/f í Þorlákshöfn. … Halda áfram að lesa Ólafur GK 33
Jónína Brynja ÍS 55
2868. Jónína Brynja ÍS 55. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2020. Jónína Brynja ÍS 55 hefur róið að undanförnu frá Grindavík og tók Jón Steinar þessar myndir af henni sl. laugardag en það var síðasti róðurinn þaðan að sinni. Jónína Brynja ÍS 55 var smíðuð fyrir Jakob Valgeir ehf. í Bolungarvík hjá bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði … Halda áfram að lesa Jónína Brynja ÍS 55
Lyngey SF 61
1246. Lyngey SF 61 ex Fylkir NK 102. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Lyngey SF 61 hét upphaflega Fylkir NK 102 og var smíðuð í Vélsmiðju Seyðisfjarðar hf. árið 1972 fyrir Drift hf. í Neskaupstað. Báturinn, sem upphaflega var 92 brl. að stærð var seldur til Hafnar í Hornafirði árið 1978 og fékk þá nafnið Lyngey SF … Halda áfram að lesa Lyngey SF 61
Óli G GK 50
2657. Óli G GK 50 ex Elín BA 58. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2020. Jón Steinar myndaði Óla G GK 50 koma til hafnar í Grindavík í gær en báturinn er í eigu Stellar Seafood ehf. í Sandgerði. Báturinn hét upphaflega Særif SH 25 og var smíðaður hjá Trefjum árið 2005. Eigandi Melnes ehf. á … Halda áfram að lesa Óli G GK 50
Sæunn ÞH 69
2097. Sæunn ÞH 69. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2001. Sæunn ÞH 69 siglir hér innan hafnar í Sandgerði um árið, sennilega sumarið 2001. Sæunn var, og er , af Selfagerð smíðuð í Noregi árið 1990. Sæunn ÞH 69 var smíðuð fyrir feðgana Sturlu Hjaltason og Snorra Sturluson á Raufarhöfn. Árið 2008 fær Sæunn einkennisstafina NK 10 … Halda áfram að lesa Sæunn ÞH 69
Örvar SH 777 á Skjálfanda
2159. Örvar SH 777 ex Vestkapp SF-8-S. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Línuskipið Örvar SH 777 frá Hellisandi kom til löndunar á Húsavík þann 15. september árið 2009 og þá voru þessar myndir teknar. Upphaflega hét skipið Tjaldur II SH 370 og var smíðaður í Noregi fyrir KG fiskverkun á Rifi árið 1992. Líkt og systurskipið … Halda áfram að lesa Örvar SH 777 á Skjálfanda
Ársæll SH 88
1014. Ársæll SH 88 ex Steinunn SF 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Ársæll SH 88, sem hér sést nýskveraður og fínn í Hafnarfjarðarhöfn í lok ágústmánaðar árið 2004, var í eigu Sólborgar ehf. í Stykkishólmi. Svo sagði í Morgunblaðinu 25. ágúst 2001 þegar báturinn kom til nýrrar heimahafnar í Stykkishólmi: Nýr bátur kom til heimahafnar … Halda áfram að lesa Ársæll SH 88
Von ÍS 213
2733. Von ÍS 213 ex Von GK 113. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Línubáturinn Von ÍS 213 frá Súgandafirði hefur róið frá Grindavík að undanförnu og náði Jón Steinar að mynda hana í gær. Það er Norðureyri ehf. á Suðureyri sem gerir bátinn út en hann hét áður Von GK 113. Von var keypt til þess … Halda áfram að lesa Von ÍS 213









