
Færeyska skipið Norðingur kom inn til löndunar á Fáskrúðsfirði í gær, sumardaginn fyrsta með um 1781 tonn af kolmunna.
Nordingur, sem hefur heimahöfn í Klakksvík, var smíðaður hjá Fitjar Mek. Verkstad í Noregi árið 2003.
Skipið er 68,8 metrar að lengd, 13,8 metra breitt og mælist 2,017 brúttótonn að stærð.


Að sjálfsögðu fengu kallarnir tertu. 
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution