
Hafdís SF 75 liggur hér við bryggju á Hornafirði sumarið 2004 en báturinn var keyptur þangað vorið 1991.
Báturinn var keyptur frá Ísafirði þar sem hann hafði borðið saman nafn en verið ÍS 25.
Upphaflega hét báturinn Fróði SH 15 og var smíðaður í Slippstöðinni hf. á Akureyri fyrir Víglund Jónsson í Hróa hf. í Ólafsvík. Fróði var 143 brl. að stærð búinn 887 hestafla MWM aðalvél. Hann var yfirbyggður árið 1981.
Fróði SH 15 var seldur Magna hf. á Ísafirði sumarið 1989 og fékk hann nafnið Hafdís ÍS 25 og var m.a gerður út á rækju.
Hafdís Sf 75 var seld úr landi til niðurrifs árið 2005.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution