Guðmundur Ólafur ÓF 91

1020. Guðmundur Ólafur ÓF 91 ex Krossanes SU 5. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson.

Guðmundur Ólafur ÓF 91 hefur hér siglt fram hjá Kristbjörginni um árið og pabbi smellt af einni mynd.

Upphaflega hét skipið Börkur NK 122 frá Neskaupstað, smíðaður í Noregi árið 1966.  Árið 1972 fékk hann nafnið Bjarni Ólafsson AK 70, lengt og yfirbyggt árið 1975. Eftir það mældist hann 288 brl. að stærð.

Árið 1977 fékk hann nafnið Arnarnes HF 52 og 1981 Krossanes SU 5 en það hét hann þegar Garðar Guðmundsson keypti hann til Ólafsfjarðar frá Djúpavogi árið 1983.

Guðmundur Ólafur fékk síðar nafnið Snæfugl SU 20 og var breytt í brunnbát árið 2003.

Snæfugl var seldur til Noregs árið 2008 og fékk nafnið Sørdyrøy.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd