Lokadagur vetrarvertíðar

1263. Sæbjörg EA 184 ex Árný SF 6. Heimahöfn Grímsey. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. 11. maí, var áratugum saman skráður lokadagur vetrarvertíðar á almanakinu og af því tilefni birtast hér nokkrar myndir sem Hreiðar Olgeirsson tók af norðlenskum netabátum. Þeir áttu það sameiginlegt að allir voru þeir smíðaðir á Íslandi og áttu, þegar myndirnar voru teknar, heimahafnir við Eyjafjörð. … Halda áfram að lesa Lokadagur vetrarvertíðar

Þórir og Skinney fyrir og eftir breytingar

2732. Skinney SF 20 - 2731. Þórir SF 77. Ljósmynd Magnús Jónsson. Maggi Jóns sendi mér þessar myndir sem sýna Hornfirðingana Skinney SF 20 og Þóri SF 77 fyrir og eftir breytingarnar sem fram fóru í Póllandi en skipin komu til landsins á dögunum. Skipin voru smíðuð hjá Ching Fu Shipbuilding co.,LTD skipasmíðastöðinni í Taiwan … Halda áfram að lesa Þórir og Skinney fyrir og eftir breytingar

Hraunsvík leggur netin suður af Hópsnesi

1907. Hraunsvík GK 75 ex Konráð SH 60. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Á dögunum birtust myndir af Hraunsvík GK 75 þar sem kallarnir voru að draga netin en það þarf líka að leggja þau. Á þessum myndum sem Jón Steinar tók eru þeir Viktor og Brynjólfur að leggja netin skammt suður af Hópsnesi. 1907. Hraunsvík … Halda áfram að lesa Hraunsvík leggur netin suður af Hópsnesi

Óskar Halldórsson RE 157

962. Óskar Halldórsson RE 157. Ljósmynd Leifur Háknarson 1974. Óskar Halldórsson RE 157 liggur hér utan á Reykjaborginn RE 25 í Reykjavíkurhöfn sumarið 1974. Óskar Halldórsson RE 157 var smíðaður í Zandaam í Hollandi fyrir Ólaf Óskarsson útgerðarmann í Reykjavík sem nefndi hann eftir föður sínum Óskari Halldórssyni útgerðarmanni og síldarspekúlant.   Með því að … Halda áfram að lesa Óskar Halldórsson RE 157

Ragnar Alfreðs GK 183

1511.Ragnar Alfreðs GK 183 ex Ragnar Alfreðs HU 7. Ljósmynd Þór Jónsson. Ragnar Alfreðs GK 183 var smíðaður í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. á Skagaströnd og afhentur árið 1978. Hann hét upphaflega Sif ÍS 90 og var frá Suðureyri við Súgandafjörð. Síðar Jóhannes Gunnar GK 74, Freyr HF 134, Vörðufell GK 205, Sandvík SK 188, … Halda áfram að lesa Ragnar Alfreðs GK 183

Sigurður Pálsson ÓF 66

396. Sigurður Pálsson ÓF 66 ex Eyrún EA 58. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sigurður Pálsson ÓF 66 kemur hér að landi á Ólafsfirði um árið, Akureyrarsmíði sem enn er að undir nafninu Trausti EA 98. Báturinn sem, er 8 brl. að stærð, hét upphaflega Eyrún EA 58 var smíðaður 1954 fyrir Hríseyinga í skipasmíðastöð KEA. 1973 … Halda áfram að lesa Sigurður Pálsson ÓF 66

Veidar M-1-G í Hafnarfirði

LEPY. Veidar M-1-G frá Álasundi. Ljósmynd Magnús Jónsson 2019. Eitt glæsilegasta línuskip Norðmanna, Veidar M-1-G var í Hafnarfjarðarhöfn í gær og tók Maggi Jóns þessar myndir af því. Það var afhent Veidar AS frá skipasmíðastöinni Simek AS í Flekkufirði á mars á síðasta ári. Heimahöfn þess er Álasund. LEPY. Veidar M-1-G frá Álasundi. Ljósmynd Magnús … Halda áfram að lesa Veidar M-1-G í Hafnarfirði