Mánaberg ÓF 42 á toginu

1270. Mánaberg ÓF 42 ex Merkúr RE 800. Ljósmynd Þór Jónsson. Skuttogarinn Mánaberg ÓF 42 var einn stóru Spánartogaranna sem smíðaðir voru fyrir Íslendinga á Spáni árið 1973-1975. Þeir voru smíðaðir í Astilleros Luzuriaga S.A. skipa­smíðastöðinni í Pasaj­es de San Juan skammt frá San Sebastian á Norður-Spáni. Mánabergið hét upphaflega Bjarni Benediktsson RE 210, síðar … Halda áfram að lesa Mánaberg ÓF 42 á toginu

Örfirisey RE 14 í skemmtisiglingu á Skjálfanda

1030. Örfirisey RE 14. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1967. Örfirirsey RE 14 er hér á siglingu með Húsvíkinga á sjómannadaginn 1967 að ég held en skipið kom til landsins í febrúar það ár. Í Morgunblaðinu sagði frá komu Örfiriseyjar RE 14 þann 10 febrúar í skeyti frá fréttaritara blaðsins 9. febrúar: Nýtt skip m.s. Örfirisey RE … Halda áfram að lesa Örfirisey RE 14 í skemmtisiglingu á Skjálfanda

Fjölnir ÍS 7

1135. Fjölnir ÍS 7 ex Fjölnir GK 7. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Línubáturinn Fjölnir ÍS 7 fer hér frá bryggju á Húsavík eftir löndun í nóvembermánði árið 2004. Smíðaður í Stálvík í Garðarbæ 1971 og hét upphaflega Þórunn Sveinsdóttir VE 401. Vinnslustöðin kaupir bátinn árið 1992 þegar ný Þórunn Sveinsdóttir VE 401 leysti hann af … Halda áfram að lesa Fjölnir ÍS 7

Baltic Forward við Straumsvík

Baltic Forward við akkeri utan við Straumsvík. Baltic Forward lá fyrir akkeri utan við Straumsvík í gær þegar Jón Steinar átti leið fram hjá og tók þessar myndir. Skipið skráð undir kýpversku flaggi með heimahöfn í Limasol. Það var smíðað 1988 hjá Stocznia Gdanska S.A. í Gdansk. Það er 140 metarar að lengd og 20 … Halda áfram að lesa Baltic Forward við Straumsvík

Eyrún ÁR 66

2476. Eyrún ÁR 66 ex Sparkling Line. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Eyrún ÁR 66 lætur hér úr höfn í Þorlákshöfn í marsmánuði 2005 en útgerðafyrirtækið Ævarr ehf. í Þorlákshöfn keypti hann frá Englandi árið 2000. Báturinn hét Sparkiling Line og var smíðaður í Skotlandi árið 1989, 108 BT að stærð. Seldur til Englands árið 2006 þar … Halda áfram að lesa Eyrún ÁR 66

Húni II

108. Húni II ex Sigurður Lárusson SF 114. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2010. Húni II lætur hér úr höfn á Húsavik 16. júní árið 2010. Húni II var smíðaður í skipasmíðastöð KEA á Akureyri árið 1963 og hét upphaflega Húni II HU 2 frá Höfðakaupstað. Tryggvi Gunn­ars­son, skipa­smíðameist­ari, teiknaði Húna II.  Með því að smella á … Halda áfram að lesa Húni II

Selfoss við bryggju á Húsavík

Selfoss ex Shopia. Ljósmynd Gaukur Hjartarson 2019. Skip Eimskipafélags Íslands, Selfoss, var við Bökugarðinn í gær en það skip kemur á tveggja vikna fresti til Húsavíkur. Selfoss er 700 gámaeininga skip, 130 metra langur, og siglir undir færeyskum fána. Eimskip keypti skipið, sem smíðað var 2008, árið 2017 en það hét áður Sophia. Með því að … Halda áfram að lesa Selfoss við bryggju á Húsavík

Assa í Njarðvíkurhöfn

2305. Assa BA ex Laugarnes. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Gamla olíuflutningaskipið Laugarnes hefur skipt um eigendur og nafn, heitir nú Assa BA og komið með heimahöfn á Tálknafirði. Eigandinn er Sjótækni ehf. sem er eins og segir á heimasíðu fyrirtækisins ,,hafsækinn vertaki sem þjónustar fiskeldi, neðansjávarlagnir og rekur köfunarþjónustu". Assa var smíðuð 1978 hjá Sakskobing … Halda áfram að lesa Assa í Njarðvíkurhöfn