Björgúlfur EA 312

2892. Björgúlfur EA 312. Ljósmynd Haukur Sigtryggur 2019. Samherjatogarinn Björgúlfur EA 312 kom til heimahafnar úr Barentshafinu í dag og tók Haukur Sigtryggur þessa mynd þá. Björgúlfur var smíðaður í Tyrklandi árið 2017 og kom til heimahafnar á Dalvík 1. júní það ár. Björgúlfur er einn fjögurra togara sem smíðaður er eftir sömu teikningu fyrir íslenskar útgerðir … Halda áfram að lesa Björgúlfur EA 312

BG nes ehf. kaupir Hafrúnu ÍS 54 frá Flateyri

2585. Hafrún ÍS 54 ex Rósi ÍS 54. Ljósmynd Flateyrarhöfn 2018. BG nes ehf. í Fjallabyggð hefur keypt línubátinn Hafrúnu ÍS 54 af West Seafood ehf. á Flateyri. Fréttavefurinn bb.is greinir frá þessu í dag. West Seafood ehf. tekur 6991 Odd á Nesi ÓF 176 upp í en eins og fram kom hér á síðunni … Halda áfram að lesa BG nes ehf. kaupir Hafrúnu ÍS 54 frá Flateyri

Guðfinnur KE 19

2606. Guðfinnur KE 19 ex Kristbjörg ST 6. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Guðfinnur KE 19 öslar hér til hafnar í Sandgerði vorið 2006 en bátur þessi hét upphaflega Kristbjörg ST 6. Kristbjörg ST 6 var smíðuð hjá bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði fyrir Guðmund Ragnar Guðmundsson útgerðarmaður frá Drangsnesi. Báturinn, sem er af gerðinni Cleopatra 38, … Halda áfram að lesa Guðfinnur KE 19

Þórunn Sveinsdóttir í Karstensens Skibsværft

2401. Þórunn Sveinsdóttir í Karstensens Skibsværft í Skagen. Ljósmynd Ásgeir Kristjánsson 2019. Í síðustu viku var byrjað að púsla Þórunni Sveinsdóttur VE 401 saman í Karstensens Skibsværft A/S í Skagen. Þar er verið að lengja hana um 6,6 metra sem mun gera þetta glæsilega skip enn glæsilegra. Með því að smella á myndina er hægt … Halda áfram að lesa Þórunn Sveinsdóttir í Karstensens Skibsværft