
Línuskipið Hrafn GK 111 kom til hafnar í Grindavík í gær en hafði stutta viðdvöl og fór út strax aftur.
Jón Steinar tók þessar flottu myndir af Hrafninum á drónann sinn sem og þetta myndband.

Hrafn GK 111 hét upphaflega Gullberg VE 292 og var smíðaður hjá Baatservice Verft A/S í Mandal í Noregi 1974 fyrir Ufsaberg hf. í Vestmannaeyjum.

Skipið var yfirbyggt 1977 og lengt 1995 og brúin hækkuð ásamt því að settur var á það bakki.
Hrafn GK 111, sem áður hét Ágúst GK 95, er 48,46 metrar á lengd, 8,2 metra breiður og mælist 446 brl. / 601 BT að stærð.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can wiew them in higher resolution