
Vörður ÞH 44 og Áskell ÞH 48 sem Gjögur hf. er að láta smíða eru komnir á flot í Víetnam þar sem skrokkar skipanna eru smíðaðir.
Það sama má segja um Þinganes SF 25 sem Skinney-Þinganes hf. er að láta smíða á sama stað. Fjórða skipið er Steinunn SF 10.

Skipin fjögur verða síðan flutt með flutningaskipi til Noregs en þau eru hluti af sjö skipa raðsmíðaverkefni sem íslensk útgerðarfyrirtæki sömdu um við Vard, sem rekur m.a. skipasmíðastöðvar í Noregi, Rúmeníu og Brasilíu, auk Víetnams.
Auk Gjögurs og Skinneyjar-Þinganess er verið að smíða tvö skip fyrir Berg-Hugin, dótturfélag Síldarvinnslunnar, og eitt fyrir Útgerðarfélag Akureyringa. Síðarnefndu skipin þrjú verða að öllu leyti smíðuð í Noregi.


Meðfylgandi myndir eru fengnar af Fésbókarsíðu Gjögurs hf. og birtar með leyfi frá fyrirtækinu.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can wiew them in higher resolution