
Fiskifréttir greina frá því í nýjasta tölublaði sínu að línuskipið Stormur HF 294 hafi verið seldur til Kanada.
Samist hefur um kaup kanadísks útgerðarfélags á línu- og netaskipinu Stormi HF af Stormi Seafood í Hafnarfirði. Kaupverðið er 140 milljónir evra, um 1,9 milljarður ÍSK. Nú er aðeins beðið eftir frágangi á fjármögnun kaupanna. Skipið hefur legið við festar í Reykjavíkurhöfn í á þriðja ár. Hingað kom það úr breytingu í Póllandi í desember 2017.
Segir í Fiskifréttum en hér má lesa fréttina alla.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can wiew them in higher resolution
Slæmt að þetta nýja skip herfi úr landi til Canada, flott línuveiðiskip með rafmótor á skrúfuöxli. olíu notkun í lágmarki . kv.AE
Líkar viðLíkar við