
Hér koma myndir af Dala-RAfni VE 508 koma til hafnar í Vestmannaeyjum í brælunni í fyrradag.
Eins og ég hef skrifað áður hér síðuna var Dala Rafn VE 508 smíðaður í Póllandi árið 2007 fyrir samnefnt útgerðarfélag. Þá var hann grænn en Ísfélag Vestmannaeyja keypti bátinn 2014 og með tímanum varð hann rauður.

Dala-Rafn VE 508 á sér þrjú systurskip í flotanum, Bergey VE 544, Vestmannaey VE 444 og Vörð EA 748.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can wiew them in higher resolution