
ÚA keypti Sléttbak í marsmánuði árið 2002 af SISL-Sevryba Two Limited en hann var smíðaður í Orskov Shipyard í Danmörku árið 1998.
Sléttbakur EA 304, síðar EA 4, var, 58 metra langur og 13,5 metra breiður og með 4.000 hestafla aðalvél. Sléttbakur var vel tækjum búið skip til frystingar á bolfiski sagði í fréttum.
Ekki varð útgerð hans löng hér við Ísland því Sléttbakur var seldur til Kanada árið 2005. Þar fékk hann nafnið Osprey NO 1 og hefur haldið því síðan. Heimahöfn Vancouver.
Sléttbakur átti sér eitt systurskip í íslenska flotanum, það var Þór HF 4.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can wiew them in higher resolution