Helga Guðmundsdóttir SH 108

245. Helga Guðmundsdóttir SH 108 ex Helga Guðmundsdóttir BA 77. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1983.

Hér siglir Helga Guðmundsdóttir SH 108 um Breiðafjörð á vetrarvertíðinni árið 1983 en báturinn bar þessa skráningu fyrstu 5-6 mánuðina það ár.

Um mitt ár 1983 fékk báturinn nafnið Þórsnes SH 108 og var í eigu samnefnds fyrirtækis í Stykkishólmi.

Upphaflega hét báturinn Helga Guðmundsdótir BA 77 og var smíðaður árið 1964 fyrir Vesturröst hf. á Patreksfirði hjá Bolsönes Verft í Molde í Noregi.

Árið 1969, þegar ný Helga Guðmundsdóttir BA 77, leysti þessa af hólmi fékk báturinn nafnið Látraröst BA 177.

Í ársbyrjun 1971 keypti Ísbjörninn hf. í Reykjavík bátinn og fékk hann nafnið Ásborg RE 50. Í nóvember árið 1976 var báturinn seldur Sólborgu hf. í Grindavík og hélt báturinn nafninu en varð GK 52.

Í janúar árið 1978 keypti Hafnarröst hf. á Patreksfirði bátinn sem fékk nafnið Dofri BA 25.

Árið 1982 er Vesturröst hf. aftur orðinn eigandi að bátnum og hann fær sitt gamla nafn, Helga Guðmundsdóttir BA 77.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd