
Skipamyndir.com óskar öllum þeim sem sækja síðuna heim gleðilegs nýs árs með þökk fyrir innlitið á því gamla sem nú er liðið í aldanna skaut.
Meðfylgjandi mynd var tekin á Gamlárskvöld árið 2007 við brennu Húsvíkinga sem var nokkuð vegleg það árið.
Þarna er að brenna skrokkur 50 brl. báts sem smíðaður var í Skipavík í Stykkishólmi árið 1970 og hét upphaflega Jón Helgason ÁR 12.
Báturinn, sem hét þegar þarna var komið við sögu Reynir GK 177, hafði staðið uppi í dráttarbrautinni á Húsavík í rúmlega fimm ár eftir að hann skemmdist við ásiglingu á brimvarnargarð sem var í byggingu, svokallaðan Bökugarð.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
Ég óska þér og og fjölskyldu gleðilegs árs og takk fyrir skemtunina í gegnum árin.
Líkar viðLíkar við
Takk fyrir Orri og sömuleiðis.
Líkar viðLíkar við