Bjössi Sör í slipp

1417. Bjössi Sör ex Breiðdælingur SU 62. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Tók þessa mynd í kvöld af hvalaskoðunarbátnum Bjössa Sör prýddum jólaljósum í slippnum á Húsavík Bjössi Sör hefur verið í vélarskiptum undanfarið en hann var ekki í notkun á síðustu hvalaskoðunarvertíð Norðursiglingar. Á bak við hann í dráttarbrautinni er skonnortan Haukur. Með því að … Halda áfram að lesa Bjössi Sör í slipp

Stefán Rögnvaldsson EA 345

616. Stefán Rögnvaldsson EA 345 ex Egil BA 468. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Stefán Rögnvaldsson EA 345 var  68 brl. að stærð og hét upphaflega Jón Guðmundsson KE 4, hann hét síðan, Ísleifur ÁR, Askur,ÁR, Guðbjörg ST, Laufey ÍS, Dagur SI og Egill BA. Stefán Rögnvaldsson hf. keypti hann frá Patreksfirði 1987. Báturinn var smíðaður í Þýskalandi … Halda áfram að lesa Stefán Rögnvaldsson EA 345

Björg Jónsdóttir ÞH 321

2618. Björg Jónsdóttir ÞH 321 ex Birkeland. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Í nóvembermánuði 2004 kom ný Björg Jónsdóttir ÞH 321 til heimahafnar á Húsavík. Útgerðarfélagið Langanes ehf. festi kaup á skipinu  í Noregi en það kom frá Póllandi þar sem það hafði verið í breytingum. Breytingarnar fólust m.a í því að í því að sett var … Halda áfram að lesa Björg Jónsdóttir ÞH 321

Súlan EA 300 á Eyjafirði

1060. Súlan EA 300. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þarna er Súlan EA 300 eittthvað að bardúsa á Eyjafirði um árið  Súlan var 354 brl. að stærð, smíðuð í Fredrikstad í Noregi 1967 fyrir Leó Sigurðsson á Akureyri. Hún var lengd  í Hollandi 1974 og mældist þá 393 brl. og yfirbyggt 1975 og mældist þá 391 brl. … Halda áfram að lesa Súlan EA 300 á Eyjafirði