
Byr GK 59 var smíðaður í Hafnarfirði 1988 og er í eigu Gunnars Berg Ólafssonar í Grindavík.
Bátinn keypti Gunnar Berg árið 2001 og kom hann í stað eldri báts sem Hlíf GK 250 hét. Um hana var fjallað hér fyrir nokkrum dögum.
Báturinn hét Hrappur GK 170 og var í eigu Jóhanns Guðfinssonar. Stakkavík er skráður eigandi um tíma(1996). Síðar SF 170. Miðós sf. Þinganes ehf. og Skinney-Þinganes hf. skráðir eigendur 1997-2001 á vef Fiskistofu.
Nú spyr ég, hét hann upphaflega Hrappur GK 170 ?
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í stærri upplausn.
Hann hét Spörri Gk ? það komu tveir svona bátar Funi og Spörri til Grindavíkur Funi með Caterpillar en Spörri með Iveco 🙂 Funi var seldur til Hafnarfjarðar og fékk nafnið Hafsvala eigandi Halli Þorgeirs en Jói Guðfinns eignaðist Spörra (annar eigandinn af Spörra fórst með Eldhamri 1991)
Líkar viðLíkar við
Takk fyrir þessar upplýsingar Magnús.
Líkar viðLíkar við