Eyborg EA 59

498. Eyborg EA 59 ex Gullþórir SH 115. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1982.

Hríseyjarbáturinn Eyborg EA 59 dregur hér netin á Breiðafirði vorið 1982 en það var Borg h/f sem gerði hana út.

Báturinn, sem var 58 brl. að stærð, hét upphaflega Gullþórir VE 39 og var smíðaður í Svíþjóð 1958 fyrir Helga Benediktsson útgerðarmann í Vestmannaeyjum.

Árið 1964 var Gullþórir seldur Björgu h/f í Stykkishólmi og varð SH 115.

Það var svo vorið 1981 sem Borg h/f kaupir bátinn og nefnir hann Eyborg EA 59. Það nafn bar hann til ársins 1985 en þá fær hann nafnið Ísborg EA 159.

Árið 1991 er báturinn seldur Barða hf. á Patreksfirði og verður Ísborg BA 477.

Haukur Sigtryggur sendi miða:

0498….Gullþórir VE 39… TF-JW.

Skipasmíðastöð: Djupviks Bátverv. Djupvik. Svíþjóð. 1959.
1963 = Brúttó: 58. U-þilfari: 51. Nettó: 16.
Lengd: 20,39. Breidd: 5,25. Dýpt: 2,47.

Kom nýr til Vestmannaeyja 30.01.1959.

Mótor 1959 June Munktel 360 hö.
Ný vél 1971 Caterpillar 261 kw. 355 hö.

Gullþórir VE 39. Útg: Helgi Benediktsson. Vestm. (1959 – 1964).
Gullþórir SH 115. Útg: Björg h.f. Jón Ísleifsson. Stykkishólmi. (1964 – 1979).
Gullþórir SH 114. Útg: Björg h.f. Jón Ísleifsson. Stykkishólmi. (1979 – 1981).

Eyborg EA 59. Útg: Borg h.f. Birgir Sigurjónsson. Hrísey. (1981 – 1985).
Ísborg EA 159. Útg: Borg h.f. Birgir Sigurjónsson. Hrísey. (1985 – 1991).
Ísborg BA 477. Útg: Barði h.f. Patreksfirði. (1991 – 1994).

Tekinn af skrá 29.12.1994.

Í aprílmánuði árið 1994 kom up eldur í bátnum út af Látrabjargi og var áhöfninni bjargað um borð í nærstaddan bát. Ísborgin var dregin til Patreksfjarðar en hún gjöreyðilagðist í brunanum.

Lesa má um atburðinn hér.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd