
Netabáturinn Happasæll KE 94 kemur hér að landi í Keflavík á vetrarvertíðinni árið 2002 en báturinn var smíðaður fyrir samnefnda útgerð í Kína árið 202.
Happasæll var seldur til Hornafjarðar árið 2004 þar sem hann fékk nafnið Hvanney SF 51 og var gerður út til dragnóta-, tog- og netaveiða. Eigandi Skinney – Þinganes hf.
Árið 2019 keypti Nesfiskur hf. í Garðinum Hvanney og fékk báturinn nafnið Sigurfari GK 138 sem hann ber enn þann dag í dag.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution