Byr GK 59

1925. Byr GK 59 ex Hrappur SF 170. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005.

Byr GK 59 var smíðaður í Hafnarfirði 1988 og er í eigu Gunnars Berg Ólafssonar í Grindavík.

Bátinn keypti Gunnar Berg árið 2001 og kom hann í stað eldri báts sem Hlíf GK 250 hét. Um hana var fjallað hér fyrir nokkrum dögum.

Báturinn hét Hrappur GK 170 og var í eigu Jóhanns Guðfinssonar. Stakkavík er skráður eigandi um tíma(1996). Síðar SF 170. Miðós sf. Þinganes ehf. og Skinney-Þinganes hf. skráðir eigendur 1997-2001 á vef Fiskistofu.

Nú spyr ég, hét hann upphaflega Hrappur GK 170 ?

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í stærri upplausn.

2 athugasemdir á “Byr GK 59

  1. Hann hét Spörri Gk ? það komu tveir svona bátar Funi og Spörri til Grindavíkur Funi með Caterpillar en Spörri með Iveco 🙂 Funi var seldur til Hafnarfjarðar og fékk nafnið Hafsvala eigandi Halli Þorgeirs en Jói Guðfinns eignaðist Spörra (annar eigandinn af Spörra fórst með Eldhamri 1991)

    Líkar við

Færðu inn athugasemd