Blíðfari ÓF 70

2069. Blíðfari ÓF 70 ex Sæborg SU 400. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Strandveiðibáturinn Blíðfari ÓF 70 kemur hér að landi á Siglufirði í gær en báturinn stundar alla jafna róðra þaðan. Blíðfari hét upphaflega Ólafur HF 251 og var smíðaður árið 1990 hjá Mótun í Hafnarfirði. Ólafur HF 251 var seldur til Siglufjarðar árið 2005 … Halda áfram að lesa Blíðfari ÓF 70 →

Vestri á útleið frá Siglufirði

3030. Vestri BA 63 ex Tobis. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Rækjutogarinn Vestri BA 63 stundar veiðar úti fyrir Norðurlandi og landar á Siglufirði. Hann er þar yfirleitt á þriðjudögum og því var brunað á Tröllaskagann í morgun. Útgerðarfyrirtækið Vestri ehf. á Patreksfirði keypti skipið frá Noregi í vetur. Í Noregi hét það Tobis en fékk … Halda áfram að lesa Vestri á útleið frá Siglufirði →

NG Explorer kom til Húsavíkur í dag

IMO 8019356. National Geographic Explorer siglir inn Skjálfanda í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Farþegaskipið National Geographic Explorer kom til Húsavíkur um miðjan dag í dag og það ekki í fyrsta skipti. Skipið lagðist að Þvergarðinum en Silver Whisper var við Bökugarðinn. Skipið var smíðað árið 1982 í Ulstein Verft AS í Noregi og er í … Halda áfram að lesa NG Explorer kom til Húsavíkur í dag →

Strandveiðibátar taka olíu

6836. Jón Jak ÞH 8 - 6969. Lilja ÞH 21. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Hér gefur að líta strandveiðibátana Jón Jak ÞH 8 og Lilju ÞH 21 þar sem kallarnir voru að taka olíu eftir róður gærdagsins. Farþegar að tínast um borð í hvalaskoðunarbátinn Garðar í baksýn en hvorki gaf veður til strandveiða né hvalaskoðunar … Halda áfram að lesa Strandveiðibátar taka olíu →

Andey BA 125

1170. Andey BA 125 ex Andey SH 242. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Andey BA 125 hét upphaflega Trausti ÍS 300 frá Suðureyri við Súgandafjörð og var smíðaður í Stálvík árið 1971. Hann hafði smíðanúmer 16 hjá Stálvík og var smíðaður eftir teikningu Ágústs G. Sigurðssonar. 1973 er Trausti seldur til Keflavíkur, kaupendur er Magnús Þórarinsson, Jónas … Halda áfram að lesa Andey BA 125 →

Síldar­vinnslan kaupir Vísi hf.

2957. Páll Jónsson GK 7 flaggskip Vísis hf. í Grindavík. Ljósmynd Jón Steinar 2022. Síldarvinnslan (SVN) hefur náð samkomulagi um kaup á öllu hlutafé útgerðarfélagsins Vísis í Grindavík. Kaupin eru háð fullnægjandi niðurstöðu áreiðanleikakönnunar ásamt samþykki hluthafafundar SVN og Samkeppniseftirlitsins. Í tilkynningu SVN til Kauphallarinnar kemur fram að viðskiptin nemi um 31 milljarði króna. Kaupverð hlutafjár er … Halda áfram að lesa Síldar­vinnslan kaupir Vísi hf. →