Ásgrímur Halldórsson SF 250

3058. Ásgrímur Halldórsson SF 250. Ljósmynd Þorlákur Þorláksson 2026.

Fékk þessa mynd senda af marílmiðunum í dag en hún sýnir nýjasta uppsjávarveiðiskip flotans, Ásgrím Halldórsson SF 250, þar sem hann er að dæla makríl yfir í systurskipið Hákon ÞH 250 frá Grenivík.

Skipin eru 75,4 metrar á lengd, 16,5 metrar á breidd og mælast,3,178 BT að stærð.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd