Vestri á útleið frá Siglufirði

3030. Vestri BA 63 ex Tobis. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022.

Rækjutogarinn Vestri BA 63 stundar veiðar úti fyrir Norðurlandi og landar á Siglufirði.

Hann er þar yfirleitt á þriðjudögum og því var brunað á Tröllaskagann í morgun.

Útgerðarfyrirtækið Vestri ehf. á Patreksfirði keypti skipið frá Noregi í vetur. Í Noregi hét það Tobis en fékk nafnið Vestri BA 63 og kom í stað eldri og minni báts með sama nafni.

Vestri var smíðaður í Danmörku árið 2009 og er 40 metra langur og 580 tonn að stærð.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s