
Frystitogarinn Sjóli HF 1 er hér við bryggju í Hafnarfirði um árið en hann var gerður út af Sjólastöðinni þar í bæ.
Sjóli var smíðaður hjá Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk A/S, Flekkefjord í Noregi og kom skipið í fyrsta skipti til heimahafnar í Hafnarfirði 21. september árið 1987.
Sjóli átti sér systurskip sem var Haraldur Kristjánsson HF 2 sem einnig var smíðaður fyrir Sjólastöðina hf. og kom til landsins vorið 1988.
Árið 1995 var Sjóli seldur norður á Sauðárkrók þar sem hann fékk nafnið Málmey SK 1 sem hann ber enn þann dag í dag.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution