
Jón Steinar tók þessar flottu myndir af Hval 9 RE 399 í gær en þá kom hann með tvær langreyðar til Hvalstöðvarinnar við Miðsand í Hvalfirði.
Hvalur 9 var smíðaður árið 1952 í Langesund í Noregi en Hvalur hf. keypti hann hingað til lands árið 1965. Hann er 51,5 metrar að lengd, breiddin er 9,06 metrar og hann mælist 573 BT að stærð.
Hvalur 9 er búinn 1900 hestafla, þriggja þjöppu, gufuvél frá 1952.



Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution