Ný Cleopatra 31 til Grindavíkur

3019. Research GK 162. Ljósmynd Trefjar 2022. Alexander John Polson útgerðarmaður fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 31 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Alex verður sjálfur skipstjóri á bátnum sem er með heimahöfn í Grindavík. Nýi báturinn heitir Research GK 162 og er 9.6m metrar á lengd og mælist 8.5 brúttótonn.  Það má … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 31 til Grindavíkur

Nýtt Hoffell væntanlegt

IMO 9414709. Asbjørn HG-265 ex Gitte Henning. Ljósmynd Högni Páll Harðarson 2022. Í gær var skrifað formlega undir kaup LVF á uppsjávarskipinu Asbjørn HG-265 frá Danmörku og sölu á Hoffelli. Frá þessu er greint á Fésbókarsíðu Loðnuvinnslunnar. Bæði skipin eru komin í slipp í Noregi. Asbjørn er 14 ára gamalt, 9 árum yngra en Hoffell. … Halda áfram að lesa Nýtt Hoffell væntanlegt

Guðrún Þorkelsdóttir SU 211

1076. Guðrún Þorkelsdóttir SU 211 ex Helga Guðmundsdóttir BA 77. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson. Hér koma myndir af Guðrúnu Þorkelsdóttur SU 211 við rækjuveiðar fyrir margt löngu síðan. Upphaflega Helga Guðmundsdóttir BA 77, smíðuð í skipasmíðastöð Þorgeirs & Ellerts á Akranesi. Hún var smíðuð fyrir Vesturröst hf. á Patreksfirði og kom ný til heimahafnar 9. mars … Halda áfram að lesa Guðrún Þorkelsdóttir SU 211

Beitir á rækjuveiðum

226. Beitir NK 123 ex Óli Óskars RE 175. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson. Beitir NK 123 frá Neskaupstað er hér að rækjuveiðum um árið en það var Síldarvinnslan hf. sem gerði hann út. Beitir NK 123 hét áður Óli Óskars og var smíðaður í Vestur-Þýskalandi árið 1958. Hann hét upphaflega Þormóður goði og var í fyrstu … Halda áfram að lesa Beitir á rækjuveiðum

Salka komin upp í slipp

1470. Salka ex Pétur afi SH 374. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Hvalaskoðunarbáturinn Salka er kominn upp í Húsavíkurslipp til skverunar. Salka var smíðuð í Skipasmíðastöðinni Dröfn h.f í Hafnarfirði árið 1976 og hét upphaflega Hafsúlan SH 7.  Sölkusiglingar ehf. á Húsavík eignuðust bátinn haustið 2016 og var hann gerður var upp í Skipavík í Stykkishólmi … Halda áfram að lesa Salka komin upp í slipp

Silver Moon á Húsavík

IMO 9838618. Silver Moon. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Slemmtiferðaskipið Silver Moon kom til Húsavíkur snemma í morgun og lagðist að Bökugarðinum. Skipið, sem var smíðað árið 2020, er 212,18 metrar að lengd, 27 metra breitt og mælist 40.844 GT að stærð. Það siglir undir fána Bahama og tekur 596 farþega. IMO 9838618. Silver Moon. Ljósmyndir … Halda áfram að lesa Silver Moon á Húsavík

Sigluvík SI 2

1349. Sigluvík SI 2. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson 1998. Siglufjarðartogarinn Sigluvík SI 2 á toginu árið 1998 en hún var einn Spánartogaranna af minni gerðinni. Sigluvík SI 2, sem smíðuð var fyrir Þormóð ramma h.f. á Siglufirði kom til landsins þann 7. apríl 1974. Hún var smíðuð hjá Astiller skipasmíðastöðinni í Huelva á Spáni og var … Halda áfram að lesa Sigluvík SI 2