
Hér koma myndir af Guðrúnu Þorkelsdóttur SU 211 við rækjuveiðar fyrir margt löngu síðan.
Upphaflega Helga Guðmundsdóttir BA 77, smíðuð í skipasmíðastöð Þorgeirs & Ellerts á Akranesi. Hún var smíðuð fyrir Vesturröst hf. á Patreksfirði og kom ný til heimahafnar 9. mars árið 1969.
Árið 1982 er skipið selt til Eskifjarðar þar sem það fékk nafnið Guðrún Þorkelsdóttir SU 211. Eigandi Hólmaborg hf. en síðar Hraðfrystihús Eskifjarðar hf. og enn síðar Eskja hf.
Árið 2004 kemur skipið til Húsavíkur í stórum skipapakka sem Íshaf hf. gerði út um tíma til rækjuveiða.
Vísir hf. í Grindavík eignast skipið árið 2005 og breytir því í línuskip. Fær nafnið Jóhanna Gísladóttir ÍS 7, síðar GK 557.
Í dag heitir skipið Jóhanna BA 107 og er með heimahöfn á Bíldudal. Útgerð Skeggi ehf. sem gerir þaðút sem þjónustuskip við fiskeldi.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution