
Siglufjarðartogarinn Sigluvík SI 2 á toginu árið 1998 en hún var einn Spánartogaranna af minni gerðinni.
Sigluvík SI 2, sem smíðuð var fyrir Þormóð ramma h.f. á Siglufirði kom til landsins þann 7. apríl 1974.
Hún var smíðuð hjá Astiller skipasmíðastöðinni í Huelva á Spáni og var smíðanúmer stöðvarinnar nr. 1.
Sigluvík SI 2 var afskráð af skipaskrá fyrri hluta árs 2003 og seld úr landi.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution