Hörður Björnsson ÞH 260

264. Hörður Björnsson ÞH 260 ex Gullhólmi SH 201. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Línuskipið Hörður Björnsson ÞH 260 sést hér á myndinni að ofan við bryggju á Húsavík í dag en hann kom að landi í fyrrinótt. Eftir löndun var hafist handa við að taka veiðarfærin frá borði en innan skamms mun nýtt skip GPG … Halda áfram að lesa Hörður Björnsson ÞH 260 →

Hópsnes GK 77

2457. Hópsnes GK 77 ex Katrín SH 575. Ljósmynd Elvar Jósefsson 2021. Línubáturinn Hópsnes GK 77, sem er hér að koma inn til hafnar í Sandgerði, hét upphaflega Katrín RE 375. Katrín var smíðuð árið 2000 hjá Bátagerðinni Samtak fyrir Rafn ehf. í Reykjavík. Sumarið 2006 varð báturinn SH 575 og heimahöfn Ólafsvík. Hann var … Halda áfram að lesa Hópsnes GK 77 →

Laxinn, nýr strandveiðbátur í flota Húsvíkinga

5920. Laxinn GK 177 ex Laxinn ÍS 109. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Laxinn GK 177 kom til Húsavíkur í dag en nýr eigandi hans, Reynir Hilmarsson, sigldi honum frá Akureyri í sunnanvindi. Laxinn, sem er strandveiðibátur, var smíðaður árið 1978 í Mótun og af þeirri gerð báta sem kölluðust Færeyingar. Það ku vera mjög lítið … Halda áfram að lesa Laxinn, nýr strandveiðbátur í flota Húsvíkinga →

Stokksey ÁR 50

1245. Stokksey ÁR 50 ex Surtsey VE 2. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Stokksey ÁR 50 er hér á toginu um árið en upphaflega hét báturinn Surtsey VE 2 og var smíðuð í Slippstöðinni á Akureyri árið 1972. Báturinn var smíðaður fyrir Hraðfrystistöð Vestmannaeyja hf. og Erling Pétursson í Vestmannaeyjum. Í upphafi mældist hann 105 brl. að … Halda áfram að lesa Stokksey ÁR 50 →

Grásleppubáturinn Sóley ÞH 28

7382. Sóley ÞH 28 ex Íshildur SH 160. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Grásleppubáturinn Sóley ÞH 28 kom að landi á Húsavík um kaffileytið í dag og voru þessar myndir teknar þá. Sóley ÞH 28 hét upphaflega Gnoð HF 25 og var smíðuð árið 1993 fyrir Jón Gíslason Hafnarfirði í Bátasmiðju Guðmundar ehf. í Hafnarfirði. Árið … Halda áfram að lesa Grásleppubáturinn Sóley ÞH 28 →