Stokksey ÁR 50

1245. Stokksey ÁR 50 ex Surtsey VE 2. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson.

Stokksey ÁR 50 er hér á toginu um árið en upphaflega hét báturinn Surtsey VE 2 og var smíðuð í Slippstöðinni á Akureyri árið 1972.

Báturinn var smíðaður fyrir Hraðfrystistöð Vestmannaeyja hf. og Erling Pétursson í Vestmannaeyjum. Í upphafi mældist hann 105 brl. að stærð og var með MWM 765 hestafla aðalvél. 1980 var Surtsey yfirbyggð og mældist þá 101 brl. að stærð. 

Hraðfrystihús Stokkseyrar hf. kaupir Surtsey VE 2 árið 1982 og nefnir hana Stokksey ÁR 50. Haustið 1992 kaupir svo Höfði hf. á Húsavík bátinn sem fær nafnið Aldey ÞH 110 og var hann gerður út til rækjuveiða.

Höfði hf. sameinast svo Íshafi hf. 1995 og ári síðar var Aldey seld til Skotlands. Sennilega notuð til úreldingar upp í nýjan rækjufrystitogara, Júlíus Havsteen ÞH 1, sem fyrirtækið keypti frá Grænlandi. 

Það er af Aldey að segja að hún fékk nafnið Ternacia FR 331 en útgerð hennar varði ekki lengi. Skotarnir voru ekki búnir að gera bátinn lengi út þegar hann sökk.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s