
Aðalbjörg RE 5 var smíðuð í Reykjavík fyrir feðgana Sigurð Þorsteinsson og Einar Sigurðsson en báturinn, sem var 22 brl. að stærð, var sjósettur árið 1935.
Í Íslensk skip segir m.a um bátinn:
Árið 1950-51 var Einar Sigurðsson einn eigandi bátsins. Árið 1955 var nýtt og stærra stýrishús sett á bátinn. Aðalbjörg var lengd hjá Þorgeiri & Ellert á Akranesi árið 1960, mældist þá 30 brl. 18,76 m á lengd. Ný vél (1971) 232 ha. Scania vél.
Frá 11 september 1972, bar báturinn skráningarnúmerið SH 215, en 16 janúar 1973 er Aðalbjörg komin aftur með númerið RE 5, sami eigandi og áður. Seldur 24 september 1974, Stefáni Einarssyni og Kára Snorrasyni á Blönduósi og Guðbjarti Einarssyni í Reykjavík, hét þá Aðalbjörg HU 25.
Frá 3 ágúst 1976 voru Stefán Einarsson á Seltjarnarnesi og Guðbjartur Einarsson í Reykjavík eigendur bátsins. Ný vél (1976) 270 ha. Scania vél. Báturinn var talin ónýtur og tekin af skrá 4 nóvember árið 1986.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution