183. Sigurður VE 15 ex Sigurður RE 4. Ljósmynd Sigmar Ingi Ingólfsson Nú þegar loðnuveiðar mega hefjast að nýju er ekki úr vegi að birta myndir af einu fallegasta loðnuskipi sem Íslendingar hafa átt. Sigurður VE 15, upphaflega síðutogarinn Sigurður ÍS 33 og síðar RE 4, smíðaður í Þýskalandi árið 1960 fyrir Ísfell h/f á … Halda áfram að lesa Sigurður VE 15
Month: febrúar 2021
Hrafn kom að landi í dag
1401. Hrafn GK 111 ex Ágúst GK 95. Ljósmynd Jón Steinar 2021. Línuskipið Hrafn GK 111 kom inn til löndunar í Grindavík um miðjan dag í dag en hann er gerður út af Þorbirninum. Við látum þessar myndir Jóns Steinars frá því í dag duga að þessu sinni en hér má lesa nánar um skipið … Halda áfram að lesa Hrafn kom að landi í dag
Haftindur í slipp
993. Haftindur HF 123 ex Halldóra HF 61. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér er Haftindur HF 123 í slipp á Akureyri um árið en eins og einhverjir kannski sjá og eða vita er þetta hvalaskoðunarbáturinn Náttfari í dag. Upphaflega hét báturinn, sem er 60 brl. að stærð, Þróttur SH 4 og smíðaður fyrir Hólma h/f í … Halda áfram að lesa Haftindur í slipp
Haukafell SF 111
108. Haukafell SF 111 ex Húni II HU 2. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Haukafell SF 111 kemur hér að bryggju í Neskaupstað, sennilega haustið 1986, en þarna var báturinn á síldveiðum með nót. Upphaflega hét báturinn Húni II HU 2 með heimahöfn í Höfðakaupstað sem nú heitir Skagaströnd. Báturinn var smíðaður 1963 eftir teikningu Tryggva Gunnarssonar … Halda áfram að lesa Haukafell SF 111
Njord Venture INS 28
IMO 8812033. Njord Venture INS 28 ex Þinganes ÁR 25. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2021. Skinney - Þinganes hefur selt Þinganes ÁR 25 til Skotlands þar sem heimahöfnin verður Innverness. Nýja nafnið er Njord Venture INS 28. Þinganes er eitt fjögurra systurskipa sem smíðuð voru á sínum tíma fyrir Íslendinga hjá Carnave Eir Navais Sa smíðastöðinni … Halda áfram að lesa Njord Venture INS 28
Anna EA 305
2870. Anna EA 305 ex Carimsa Star. Ljósmynd Vigfús Markússon. Hér kemur mynd úr safni Vigfúsar Markússonar sem sýnir línuskipið Önnu EA 305 að veiðum. Anna var smíðuð í Noregi árið 2001 og hét áður Carisma Star. Hún er 52. metrar að lengd, 11 metra breið og mælist 1.457 brúttótonn að stærð. Sæból fjárfestingafélag ehf. … Halda áfram að lesa Anna EA 305
Helga Jó VE 41.
486. Helga Jó VE 41 ex Dofri NK 100. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Helga Jó VE 41 hét upphaflega Guðrún ÞH 114 og var smíðuð á Akranesi árið 1961. Báturinn, sem var tæpar 12 brl. að stærð, var smíðaður í Bátastöð Akraness hf. fyrir Sigurð Finnbogason á Raufarhöfn. Guðrún var seld til Hellisands árið 1964 og … Halda áfram að lesa Helga Jó VE 41.
Norðurljósaslippur
Sæborg og Náttfari í Húsavíkurslipp. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Þessa mynd tók ég á Húsavík í kvöld og sýnir hún hvalaskoðunarbátana Sæborgu og Náttfara í slippnum en þar hafa þeir staðið upp á síðkastið. Lítið annað um hana að segja. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By … Halda áfram að lesa Norðurljósaslippur
Matthildur
241. Matthildur SH 67 ex Guðbjörg ÍS 14. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Netabáturinn Matthildur SH 67 kemur hér til hafnar í Ólafsvík á vetrarvertíðinni 1986 að ég tel. Matthildur SH 67 hét upphaflega Guðbjörg ÍS 14 og var smíðuð fyrir Hrönn h/f á Ísafirði. Smíðin fór fram í Djupvik í Svíþjóð og kom báturinn til heimahafnar … Halda áfram að lesa Matthildur
Krabbi RE
7407. Krabbi RE ex Himbriminn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Þegar Krabba RE bar fyrir augu mín á dögunum rámaði mig í að ég hefði myndað hann í Hafnarfirði fyrir einhverju síðan. Og það reyndist rétt því föstudaginn 17. júlí 2009 náðust þessar myndir sem nú birtast. Um bátinn er ekki mikið að finna nema hann … Halda áfram að lesa Krabbi RE









