
Hér kemur mynd úr safni Vigfúsar Markússonar sem sýnir línuskipið Önnu EA 305 að veiðum.
Anna var smíðuð í Noregi árið 2001 og hét áður Carisma Star. Hún er 52. metrar að lengd, 11 metra breið og mælist 1.457 brúttótonn að stærð.
Sæból fjárfestingafélag ehf. er skráður eigandi skipsins sem legið hefur í höfn undanfarin misseri en það var gert út á vegum Útgerðarfélags Akureyringa.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution