1261. Bergkvist SU 409. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Bergkvist SU 409 var smíðaður fyrir Fáskrúðsfirðinga og gerður þaðan út undir þessu nafni alla tíð. Bergkvist er svokallaður Bátalónsbátur, 11 brl. að stærð smíðaður árið 1972 í Bátalóni í Hafnarfirði. Báturinn, sem er í eigu Jóns Bergkvistssonar, ku vera enn til inni í skúr á Fáskrúðsfirði en … Halda áfram að lesa Bergkvist SU 409
Month: nóvember 2020
Þórsberg ehf. gerir samning um kaup á Grábrók ehf. af Brimi hf.
2766. Steinunn HF 108 ex Benni SU 65. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Forsvarsmenn Þórsbergs ehf. á Tálknafirði, sem gerir út bátinn Indriða Kristins BA 751 (2947) í krókaaflamarskerfinu, sem er með um 1.250 þorskígildistonn af krókaaflamarksheimildum, hafa gert samning við Brim hf. um kaup á öllu hlutafé í útgerðarfélaginu Grábrók ehf. Grábrók ehf. hefur gert … Halda áfram að lesa Þórsberg ehf. gerir samning um kaup á Grábrók ehf. af Brimi hf.
Andri VE 244
1075. Andri VE 244 ex Hásteinn ÁR 8. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Andri VE 244 hét upphaflega Hásteinn ÁR 8 frá Stokkseyri og var smíðaður árið 1969 í Skipavík h/f í Stykkishólmi. Bergur ehf. átti Andra sem kom í skiptum upp úr 1990 fyrir Örn VE 244 sem heitir Hásteinn enn þann dag í dag. Seldur … Halda áfram að lesa Andri VE 244
Geir
2408. Geir ÞH 150. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Geir ÞH 150 frá Þórshöfn kemur hér til hafnar á Húsavík í gær en han er á dragnótaveiðum. Það má lesa um bátinn hér. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them … Halda áfram að lesa Geir
Haförn
1979. Haförn ÞH 26 ex Þorsteinn BA 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Haförn ÞH 26 var myndaður í dag þegar hann kom til hafnar á Húsavík og svo sem ekkert meira um það að segja. Hér má lesa um bátinn. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By … Halda áfram að lesa Haförn
Logi GK 121
330. Logi GK 121 ex Bjarmi BA 277. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Logi GK 121 hét upphaflega Bjarmi TH 277 og var smíðaður af Nóa bátasmið á Akureyri fyrir Flateyinga árið 1958. Eigendur að Bjarma TH 277, síðar ÞH 277, voru Hermann Jónsson og synir hans Ragnar og Jón. Bátinn gerðu þeir út frá Flatey og … Halda áfram að lesa Logi GK 121
Magnús NK 72
1031. Magnús NK 72. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Magnús NK 72 siglir hér suður með Austfjörðum að haustlagi um miðjan níunda áratug síðustu aldar. Magnús var smíðaður árið 1967 í Lindstöl Skips & Baatbyggeri A/S í Risör í Noregi og var með smíðanúmer 263. Eigandi var Ölver h/f í Neskaupstað og kom skipið, sem var 274 … Halda áfram að lesa Magnús NK 72
Píla BA 76
6877. Píla BA 76 ex Góa BA 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Píla BA 76 var gerð út til strandveiða í sumar og voru þessar myndir teknar þegar báturinn kom til Patreksfjarðar úr einum róðrinum. Píla hét upphaflega Vöttur SU 41 frá Reyðarfirði og var smíðuð í Bátasmiðju Guðmundar árið 1987. Frá árinu 1993 til … Halda áfram að lesa Píla BA 76
Meira af Ivid
IMO 9195779. Ilivid GR-18-318 ex Skipsholmen H-425-AV. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2020. Tryggvi Sigurðsson var einnig með myndavélina á lofti í morgun þegar Guðmundur Ingi og áhöfn hans á Ilvid litu við í Eyjum. Eins og fram kemur í færslunni hér á undan er það Arctic Prime Fisheries á Grænlandi sem á skipið sem keypt var … Halda áfram að lesa Meira af Ivid
Ilvid kom við í Eyjum
IMO 9195779. Ilvid GR-18-318 ex Skipsholmen H-425-AV. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2020. Ilvid GR-18-318 sem Arctic Prime Fisheries á Grænlandi keypti nýverið frá Noregi er á leið til Reykjavíkur þar sem skipið verður útbúið til veiða. Brim er hluthafi í Arctic Prime Fisheries og Vestmannaeyingurinn Guðmundur Ingi Guðmundsson er skipstjóri á Iivid. Þegar skipið var við … Halda áfram að lesa Ilvid kom við í Eyjum









