1159. Þorsteinn GK 16 ex Svanur SH 111. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2002. Þorsteinn GK 16 var keyptur til Grindavíkur í aprílmánuði 1997 og kom í stað nafna síns sem strandaði undir Krísuvíkurbjargi 10. mars sama ár. Báturinn, sem Hóp hf. keypti frá Stykkishólmi þar sem hann bar nafnið Svanur SH 111, var 138 brl. að … Halda áfram að lesa Þorsteinn GK 16
Month: janúar 2020
Árni ÞH 127
1493. Árni ÞH 127 ex Ástvaldur NK 52. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Árni ÞH 127 sem hér sést koma til hafnar á Húsavík var smíðaður hjá Trésmiðju Austurlands hf. á Fáskrúðsfirði árið 1977. Báturinn, sem var 6,30 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Draupni Marteinsson á Neskaupstað sem nefndi bátinn Ástvald NK 52. Bræðurnir Bragi og … Halda áfram að lesa Árni ÞH 127
Þrír rauðir í Hafnarfirði
1144. Aron HF 555, 1224. Faxaberg HF 104, 1197. Hrefna GK 58. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta þrjá fagurrauða smábáta í Hafnarfjarðarhöfn um 1990 og allir voru þeir smíðaðir þar í bæ. Næstur bryggjunni er Aron HF 555 sem upphaflega hét Aron ÞH 105 og smíðaður fyrir Guðmund A. Hólmgeirsson á Húsavík árið … Halda áfram að lesa Þrír rauðir í Hafnarfirði
Hamra-Svanur SH 201
1757. Hamra-Svanur SH 201 ex Oddeyrin EA 210. Ljósmynd Þorgeir Baldursson. Hamra-Svanur SH 201 hét upphaflega Oddeyrin EA 210 og var smíðuð í Slippstöðinni á Akureyri. Togarinn var annað tveggja svokallaðra raðsmíðaskipa sem voru smíðuð í Slippstöðinni á þessum árum, hitt var Nökkvi HU 15. Árið 1996 keypti Sigurður Ágústsson ehf. Oddeyrina EA 210 og … Halda áfram að lesa Hamra-Svanur SH 201
Ársæll Sigurðsson HF 80
1873. Ársæll Sigurðsson HF 80 ex Már GK 265. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Ársæll Siguðrsson HF 80 sem hér kemur að landi í Sandgerði vorið 2008 var smíðaður í Bátalóni árið 1987. Upphaflega hét hann Bjarni KE 23 og var 11,70 brl. að stærð búinn 235 hestafla Volvo Penta. Smíðaður fyrir Hauk St. Bjarnason, Keflavík. … Halda áfram að lesa Ársæll Sigurðsson HF 80
Blængur NK 117
2197. Blængur NK 117. Ljósmynd Þorgeir Baldursson. Haustið 1993 kom til Neskaupstaðar nýr frystitogari sem Síldarvinnslan hf. festi kaup á frá Spáni. Blængur NK 117 hét hann og tók Þorgeir Baldursson þessa mynd af honum á Eyjafirði. Í 11. tbl. Ægis það ár sagði m.a: 28. september sl. kom skuttogarinn Blængur NK 117 í fyrsta … Halda áfram að lesa Blængur NK 117
Geiri Péturs og Súlan
1825. Geiri Péturs ÞH 344 ex Rosvik - 1060. Súlan EA 300. Ljósmynd Pétur Helgi Pétursson. Þessa skemmtilegu mynd tók Pétur Helgi Pétursson sumarið 1992 og á henni má sjá Geira Péturs ÞH 344 koma til hafnar á Húsavík. Súlan EA 300 liggur utan á Þvergarðinum og hefur sennilega verið að landa rækju líkt og … Halda áfram að lesa Geiri Péturs og Súlan
Strandferðaskipið Búrfell
IMO 7383114. Búrfell ex Hekla. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Strandferðaskipið Búrfell, sem kemur hér til hafnar í Þorlákshöfn, hét áður Hekla og var í þjónustu Ríkisskipa. Skipið var í eigu Ríkissjóðs Íslands og keypt hingað til lands árið 1984, þá tíu ára gamalt. Skipið hafði þá verið hér í leigu frá árinu 1981 og siglt á … Halda áfram að lesa Strandferðaskipið Búrfell
Steini Sigvalda GK 526
1424. Steini Sigvalda GK 526 ex Stinningskaldi HF 27. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2016. Steini Sigvalda GK 526, sem kemur hér að landi í Grindavík vorið 2016, var í eigu Marons ehf. í Njarðvík. Upphaflega Þórsnes II SH 109 sem var hér til umfjöllunar á dögunum. Maron ehf. gerði Steina Sigvalda GK 526 út um tveggja … Halda áfram að lesa Steini Sigvalda GK 526
Gleðilegt nýtt ár
Flugeldasýning við áramótabrennu Húsvíkinga. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Skipamyndir.com óskar öllum þeim sem sækja síðuna heim gleðilegs nýs árs með þökk fyrir innlitið á því gamla sem nú er liðið í aldanna skaut. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view … Halda áfram að lesa Gleðilegt nýtt ár









